Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Mynd / Valli Dordingull
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin, en fyrsta hátíðin var haldin árið 2024.   

Gísli Sigmundsson, framkvæmdastjóri Sátunnar, segir að upphaf hátíðarinnar sé úr samtali hans við fjölskyldu sína árið 2023. „Dóttir okkar býr hér í Stykkishólmi. Við vorum í mat hjá henni og hún var að tala um að það væri uppselt á allar tónlistarhátíðirnar sem hana langaði á um sumarið. Þá kom upp sú hugmynd að búa bara til okkar eigin hátíð hér í Stykkishólmi.“ Samtalið hafi svo leitt til fundar með bæjaryfirvöldum í Stykkishólmi og tekið hafi verið vel í hugmyndina. Ári síðar var fyrsta hátíðin, sem býður upp á heimsþekktar hljómsveitir úr þungarokksheiminum, haldin við góðar viðtökur.

HAM lék á hátíðinni í fyrra.  Myndir / Valli Dordingull

Golfmót á þungarokkhátíð

Hátíðin er haldin í íþróttahúsinu í Stykkishólmi sem hýsir um 800 manns. Gísli segir bæjabúa hafa tekið aðkomufólki vel, en undirbúningur fyrir hátíðina er töluverður vikurnar fyrir. Á meðan blaðamaður spjallar við Gísla um skipulag og annað tengt hátíðinni þarf hann regluleg að stíga frá símanum og taka snöggar ákvarðanir.

Aðspurður um hvort bæjarbúar sæki hátíðina segir hann að þeir séu í minnihluta. „Það er helst að heimamenn kíki við ef það eru þekktar íslenskar hljómsveitir, eins og HAM eða Skálmöld, að spila. En það eru margir sem fylgjast með okkur í undirbúninginum og kíkja við í íþróttahúsið.“

Gísli segir að í ár muni Nergal, söngvari pólsku hljómsveitarinnar Behemoth stíga á stokk á Sátunni með íslensku hljómsveitinni Misþyrmingu, en Behemoth er risi í þungarokksheiminum. „Hann fékk Misþyrmingu til að spila með sér fyrstu plötu Behemoth en sú plata er 30 ára í ár. Þarna er verk sem verður spilað á átta eða níu evrópskum hátíðum í sumar, en fyrsti flutningur verður hér á Sátunni.“

Sú nýlunda er á hátíðinni í ár að efnt verður til golfmóts samhliða tónslistarflutningi. „Okkur fannst það bara svo fáránleg hugmynd að það verður stórkostlegt,“ segir Gísli. „En þetta á að vera skemmtilegt. Ef það er ekki skemmtilegt þá erum við að gera eitthvað vitlaust.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.