Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Frumgerð hrognasprautunarvélar sem gerir eldislaxinn ófrjóan.
Frumgerð hrognasprautunarvélar sem gerir eldislaxinn ófrjóan.
Fréttir 3. mars 2026

Þróun vélar til framleiðslu á ófrjóum laxi

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á síðustu tveimur árum hefur verið unnið að nýsköpunarverkefni, með stuðningi frá Tækniþróunarsjóði og Matvælasjóði, að þróun frumgerðar vélar sem leitt getur til framleiðslu á ófrjóum laxi.

Þróunarvinnan á sér stað undir merkjum félagsins 10x Lausnir, sem er stýrt af þeim Adrian Frey Rodriguez og Saulius Genutis. Adrian segir að um sjálfvirka hrognasprautunarvél sé að ræða fyrir eldislaxahrogn og hafa prófanir hingað til skilað góðum árangri.

Fyrsta og eina vélin

„Tilgangur vélarinnar er að sjálfvirknivæða aðferð við að skila inn í hrognið efni sem kemur í veg fyrir kynþroska laxa. Í kynþroskaferli eldislaxa verða orku- og eðlisbreytingar sem hægja á vaxtarferli fisksins. Hættan við erfðablöndun við villta laxastofna, er þar með úr sögunni með eldi á geldfiski,“ heldur Adrian áfram.

„Þessi frumgerð okkar er fyrsta og eina vélin sem hefur þennan tilgang. Hún nýtir tölvusjón til þess að greina hrognið og staðsetja frumu innan þess, síðan notar hún línu-snúningsmótora til þess að meðhöndla hrognið og sprautar frumuna svo sjálfvirkt. Afköst frumgerðarinnar er allt að eitt hrogn á sekúndu.“

Benchmark þróaði líftæknina

Adrian útskýrir að tæknilausn þeirra sameini hátækni vélahönnun, hugbúnaðargerð og líftækni. „Bakgrunnur okkar er í forritun og vélahönnun, við vorum saman í verkfræði í Háskólanum í Reykjavík og höfum unnið saman í ýmsum verkefnum bæði í Völku og síðan Marel.

Verkefnið er unnið í samstafi við Benchmark Genetics, sem er leiðandi í framleiðslu á laxahrognum. Þeir hafa þróað líftæknina á bakvið þessa geldingu með genaþöggun, í samstarfi við Háskóla Íslands. Þessi aðferð við geldingu hefur þá kosti umfram aðrar geldingaaðferðir að fiskurinn verður ekki erfðabreyttur. Ásamt Benchmark hafa aðilar í Noregi einnig notað þessa aðferð við geldingu, en hafa líkt og hér á landi ekki haft fjöldaframleiðsluaðferð.“

Segir Adrian að þeir laxar sem koma út úr þeirra ferli munu ekki glíma við sömu heilsuvandamál og þekkt er varðandi þriggja litninga laxa, þar sem notast sé við aðrar aðferðir.

Staðfesta niðurstöður og fjármögnun

Spurður um mögulega fjöldaframleiðslu á tækinu, segir Adrian að það velti á ýmsu. „Við þurfum fyrst og fremst að staðfesta að þær niðurstöður sem við höfum fengið hér innanhús gangi í stærri skala og til lengri tíma. 

Síðan þarf að gera fleiri tilraunir til þess að besta ferlið, bæði með tilliti til hugbúnaðar, vélahönnunar og framleiðslu. Hversu hratt við náum þessu fer svo eftir því hvernig okkur tekst að fjármagna verkefnið.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.