Skúli Magnússon innan um salattegundir í ræktun á garðyrkjustöð sinni, Hveratúni í Laugarási.
Skúli Magnússon innan um salattegundir í ræktun á garðyrkjustöð sinni, Hveratúni í Laugarási.
Mynd / smh
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnússon og konan hans, Nikki, hafa tekið við rekstri hennar – og fetar Skúli þar með í fótspor afa síns og alnafna sem stofnaði stöðina fyrir 80 árum.

Kynslóðaskipti í garðyrkju – og nýliðun yfir höfuð – mega teljast fremur fátíð á Íslandi í dag. Enn sjaldgæfara er að þriðji ættliðurinn taki við rekstri garðyrkjustöðvar, eins og hefur nú raungerst í Hveratúni.

Lemmingsland verður Hveratún

Skúli segir að afi hans og amma, Guðný Pálsdóttir, hafi keypt jörðina Lemmingsland í Laugarási og stofnað stöðina á henni árið 1946. „Ömmu fannst alveg ómögulegt að búa á stað sem héti Lemmingsland. Þau sóttu um að breyta nafninu á jörðinni og séra Eiríkur Stefánsson á Torfastöðum kom með nafnið Hveratún, sem á bara nokkuð vel við.

Upphaflega stóð til að afi færi í Garðyrkjuskólann en eitt af inngönguskilyrðum var að hafa unnið í ylrækt sem hann hafði ekki gert. Árið 1940 fór hann á SyðriReyki til að vinna við ylrækt en endaði á því að vinna þar í fimm ár og þar kynntist hann ömmu minni og taldi sig hafa lært nógu mikið til að hefja rekstur sjálfur. Þar ræktuðu þau tómata, gúrkur, steinselju og jafnvel vínber. Þau stækkuðu stöðina hægt og rólega í gegnum árin. Faðir minn, Magnús Skúlason, kláraði nám í Garðyrkjuskólanum í kringum 1980 og komu hann og móðir mín, Sigurlaug Sigurmundsdóttir, inn í reksturinn 1983 og tóku alveg við rekstrinum 2003,“ segir Skúli.

Hveratún er fjölskyldufyrirtæki

Skúli og Nikki hafa tekið við Hveratúni, en hann segir að foreldrarnir séu enn hluti af stöðinni. „Þetta er auðvitað fjölskyldufyrirtæki þannig að foreldrar mínir hjálpa enn til, en þeirra hlutverk er kannski að minnka meðan okkar hlutverk stækkar og ég held að það sé rétt og eðlileg leið til að fara í svona kynslóðaskipti.

Hvert einasta tilfelli er einstakt og mun alltaf verða. Þetta er mjög krefjandi og eflaust engin saga eins,“ segir Skúli, spurður um hvernig sé að fjármagna kaup á garðyrkjustöð. „Mín persónulega skoðun er að það sé ákveðið glapræði að selja ungu fólki gamlar garðyrkjustöðvar þar sem úreltar hugmyndir og hönnun hafa ráðið för. Það hefur verið og er stanslaus þróun í hönnun gróðurhúsa úti og líka sérstaklega hér heima síðustu ár,“ segir Skúli og vitnar þar til reglna um nýliðunarstuðning í landbúnaði sem gera eingöngu ráð fyrir stuðningi við kaup á stöðvum í rekstri.

„Ekki veit ég hvernig á að leysa úr þeim vanda en ég mæli með því að spyrja reyndari menn hvort þeir myndu frekar kaupa gamla garðyrkjustöð eða byggja nýja,“ segir hann.

Ekkert spenntur fyrir garðyrkju sem barn

Skúli segist hafa unnið öll sumur í Hveratúni sem krakki. „Ég hafði ekkert sérstaklega gaman af því. Sérstaklega þegar ég komst að því að vinir mínir fengu vasapeninga á meðan ég þurfti að vinna fyrir öllum mínum. Ég man alltaf eftir tveim hlutum sem afi minn sagði alltaf: „Lærður er í lyndi glaður“ og „Vinnan göfgar manninn“. Þetta fannst mér vera algjör vitleysa á sínum tíma en núna finnst mér ég skilja þetta og eflaust margir aðrir sem tengja við það, eða ég vona það að minnsta kosti.

Ég flutti til Reykjavíkur til að fara í nám og síðan vinna sem var mjög lærdómsríkur og skemmtilegur tími. Eftir að leigusamningurinn sem ég og vinir mínir höfðum gert við leigusalann var ekki lengur fýsilegur ákvað ég að flytja aftur heim í Hveratún og vinna meðan ég leitaði að nýjum leigustað á höfuðborgarsvæðinu. Þarna í þessu millibilsástandi áttaði ég mig á því hvað ég elskaði Hveratún og að foreldrar mínir væru ekki eilífir og einhver yrði að taka við. Ég hóf nám í Garðyrkjuskólanum meðfram því að vinna hér í Hveratúni þannig að ég gat menntað mig bóklega í faginu og fengið verklega reynslu í mínum daglegu störfum.“

Rósasalat, grandsalat og klettasalat

Skúli Magnússon eldri var líkast til með þeim fyrstu til að rækta steinselju strax við stofnun stöðvarinnar.

„Þróunin í ræktun hér á stöðinni hefur annars verið frá tómötum, papriku, steinselju og blómum, yfir í salathausa og klettasalat var byrjað að rækta 2010. Í dag eru okkar helstu tegundir rósasalat, grandsalat og klettasalat,“ segir Skúli, sem vonast til að íslenskir framleiðendur nái að anna eftirspurn á markaði á næstu árum.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...