Þök og gluggar góðir virkjanakostir
Utan úr heimi 25. nóvember 2026

Þök og gluggar góðir virkjanakostir

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Hvaða bygging sem er getur orðið að sólarorkuveri. Sérstök tækni gerir það kleift að sólarsellur eru samofnar byggingunum og geta verið á þökum, hliðum og jafnvel gluggum á nýjum byggingum og þar sem endurnýjun fer fram á gömlum.

Í nýrri skýrslu World Economic Forum er tæknin talin í hópi tíu mest lofandi tæknilausna á sviði orkumála. Víðtæk notkun hennar gæti umbreytt manngerðu umhverfi í umfangsmikla uppsprettu grænnar orku.

Eru hluti af byggingunum 

Copenhagen International School er sérlega litríkur. Hann er íklæddur 12.000 bláleitum sólarsellum, sem halla eilítið mismunandi, til að fanga sem best sólarljós úr ólíkum áttum. Þegar birta umhverfisins breytist, umbreytast litir byggingarinnar. Flekarnir, sem eru eiginlegur hluti byggingarinnar, framleiða um helming þess rafmagns sem er notað í henni. Byggingin er hönnuð af C.F. Möller Architects.

Aðferðin, building-integrated photovoltaics, gengur út á að breyta sólarljósi beint í rafmagn og er samofin byggingunum, frekar en flekar sem settir eru á ytra byrði eftir á. Hún er talin geta aukið hreina raforkunotkun í borgum umtalsvert og þykir meðal mest lofandi tæknilausna þegar kemur að sjálfbærni í orkumálum.

Framleiðir rafmagn umfram þörf

Tæknin er þegar að ryðja sér til rúms í Evrópu og nýtir að mestu leyti ónýtta orkuuppsprettu. Samanlagt mætti framleiða 27 petawattsundir af rafmagni á hverju ári á byggingum, fjórfalt magn þess sem notað er á öllum heimilum jarðarinnar.

Alls 1.400 hálf-gagnsæjar sólarsellur eru nú greyptar í kúpt og einkennandi glerþak lestar- stöðvarinnar á King´s Cross í London og uppfylla nú 10% af raforkuþörf stöðvarinnar og spara með því 100 tonn koltvísýrings árlega, án þess að einstökum arkitektúr byggingarinnar sé raskað.

Fleiri dæmi eru nefnd í skýrslunni. Powerhouse Brattörkaia í Þrándheimi er nyrsta bygging heims sem er orku-jákvæð, framleiðir sum sé meiri raforku en hún notar. Umframorkan er nýtt í byggingum og rafbílum í nærumhverfinu. Byggingin er hönnuð af Snöhetta.  

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...