Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Guðmundur Ingi og Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri undirrita reglugerð um stækkun þjóðgarðsins.
Guðmundur Ingi og Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri undirrita reglugerð um stækkun þjóðgarðsins.
Fréttir 14. júlí 2021

Þjóðgarður Snæfellsjökuls stækkar um 9%

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

Þjóðgarður Snæfellsjökuls fagnaði 20 ára afmæli nýverið og af því tilefni verður efnt til ýmissa viðburða. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skrifað undir reglugerð um stækkun þjóðgarðsins, en með viðbótinni stækkar hann um 9%. Við þjóðgarðinn bætist svæði sem liggur norðan við jökulhettu Snæfellsjökuls og austan við núverandi þjóðgarðsmörk, frá jökli að Búrfelli og norður fyrir Dýjadalsvatn. Nær nýja svæðið m.a. yfir gamla þjóðleið, Prestagötu. Hluti landsins í Gufuskálum var áður í eigu Mílu og Símans sem gáfu það þjóðgarðinum. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er staðsettur á utanverðu Snæfellsnesi og var fyrsti þjóðgarður landsins sem náði að sjó og hefur þá sérstöðu að geyma minjar frá útræði fyrri alda. Hann var stofnaður árið 2001 í þeim tilgangi að vernda bæði sérstæða náttúru svæðisins og merkilegar sögulegar minjar.

Gestum fer ört fjölgandi

Gestum þjóðgarðsins hefur farið ört fjölgandi undanfarin ár og sækir nú um hálf milljón gesta þjóðgarðinn heim árlega. Á síðasta ári heimsóttu um 200 þúsund gestir þjóðgarðinn, langflestir Íslendingar, þar sem fáir erlendir ferðamenn komu til landsins vegna kórónuveiru­faraldursins. Umfangsmikil uppbygging innviða hefur farið fram á undanförnum árum og á síðasta ári hófust framkvæmdir við gestastofu þjóðgarðsins á Hellissandi sem mun ljúka á því næsta. „Ég er afskaplega stoltur og ánægður með uppbyggingu í þjóðgarðinum á síðustu árum, hvort sem horft er til fjölgunar heilsársstarfa og sumarstarfa landvarða, innviða á borð við göngustíga og palla sem vernda náttúruna, nú eða aðstöðu og fræðslu fyrir ferðamenn sérlega með nýju gestastofunni sem verður opnuð á næsta ári. Þá er það sérstakt gleðiefni að nú í tilefni af 20 ára afmæli þjóðgarðsins, stækkum við hann umtalsvert með náttúruvernd og eflingu samfélagsins á Snæfellsnesi að leiðarljósi. Til hamingju Ísland,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra á vefsíðu ráðuneytisins. Ráðherra mun á grundvelli reglugerðar um þjóðgarðinn skipa þjóðgarðsráð en það er í fyrsta skipti sem það er gert á grundvelli laga um náttúruvernd.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.