Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Álfrúnu Eddu þykir tónlistin í Mary Poppins vera skemmtilegust.
Álfrúnu Eddu þykir tónlistin í Mary Poppins vera skemmtilegust.
Mynd / klk
Fólkið sem erfir landið 11. september 2014

Þegar ég var óviti litaði ég veggina

Álfrún Edda er fjögurra ára en er alveg að verða fimm. Ítalskur matur er í uppáhaldi en samt ekki með pepperóní eða sveppum. 
 
Nafn: Álfrún Edda Sigurðardóttir.
 
Aldur: Fjögurra ára, alveg að verða fimm.
 
Stjörnumerki: Sporðdreki.
 
Búseta: Akranes.
 
Leikskóli: Akrasel.
 
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Leika úti og líka inni í hárgreiðsluleik. Svo finnst mér gaman að vera inni að dansa.
 
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kettlingur.
 
Uppáhaldsmatur: Flest er gott, nema sveppir og pepperóní. Lasagna, pitsa og spagettí er í uppáhaldi.
 
Uppáhaldshljómsveit: Mér finnst skemmtilegasti diskurinn vera Mary Poppins.
 
Uppáhaldskvikmynd: Krakkarnir í Ólátagarði, Emil í kattholti og Lína Langsokkur.
 
Fyrsta minning þín? Ég man eftir því þegar ég fór með mömmu og ömmu Íbí til Þýskalands og ein frænka mín gaf mér Hello Kitty-tösku.
 
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, æfi dans og fótbolta.
 
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Danskennari.
 
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég var óviti þá litaði ég á veggina í herberginu mínu.
 
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Mér finnst leiðinlegt að gráta.
 
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Drekka kakó og halda afmæli. Svo förum við í skólaheimsóknir.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.