Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Bill Gates að kynna framtíðarsýn sína fyrir nokkrum árum á ráðstefnu í Þýskalandi.
Bill Gates að kynna framtíðarsýn sína fyrir nokkrum árum á ráðstefnu í Þýskalandi.
Mynd / HKr.
Á faglegum nótum 12. desember 2017

Þar verður allt byggt á ýtrustu samskipta- og flutningatækni framtíðarinnar

Höfundur: HKr.
Bill Gates, stofnandi Microsoft og um árabil ríkasti maður heims, hefur í gegnum fjárfestingarfélag sem hann stýrir keypt 10.000 hektara land (25.000 ekrur) nærri Phonix í Arizona. Þar hyggst hann reisa eins konar tilraunasamfélag, eða snjallborg. 
 
Hann hefur þegar tekið til hliðar 80 milljónir dollara (um 8,3 milljarða króna) til að hanna nýju snjallborgina, „smart city“, að því er fram kom á vefsíðu blaðsins Popular Mecanics 12. nóvember síðastliðinn. Landið sem hann hefur tryggt sér er í um 45 mínútna akstursfjarlægð vestan við borgina Phonix. Hann hefur þegar valið nafn á bæinn og á hann að heita Belmont. 
 
Þarna mun snjallborg Bill Gates væntanlega rísa í Arizona. 
 
Öll nýjasta tækni
 
„Belmont mun framkalla framsýnt hugsandi þjóðfélag þar sem hryggjarstykkið verður allra nýjasta tækni í samskiptum og innviðum sem hannað verður í kringum háhraða netkerfi, gagnaver, nýja framleiðslutækni, dreifitækni, sjálfakandi bíla og sjálfvirkar flutningamiðstöðvar.“ Kom þetta fram í tilkynningu frá Belmont Partners sem er fjárfestinga- og fasteignafélagið sem stendur á bak við verkefnið.  
 
Þjóðvegur I-11 tengir Belmont-svæðið við Las Vegas og þykir staðsetningin því kjörin fyrir þetta nýja tæknivædda samfélag, að mati Ronald Schott, yfirprófessor hjá tækniráði Arizona.  
 
Af 10.000 hektara svæði verða 1.520 hektarar (3.800 ekrur) notaðar undir verslanir, skrifstofur og atvinnustarfsemi. Aðrir 180 hektarar verða nýttir undir skóla og þá á að vera eftir nægt pláss fyrir 80.000 íbúðir. 
 
Ekki fyrsta tilraunasamfélagið
 
Hugmynd um tilraunasamfélag í ætt við Belmont er ekki ný af nálinni. Á áttunda áratug síðustu aldar var reist tilraunasamfélag í um klukkustundar akstursfjarlægð norður af Phonix, sem byggt var af arkitektinum Paoli Soleri. Hugmyndafræði Soleri byggðist á samspili arkitektúrs og vistfræði sem kallað er „arcology“. 
 
Er sagt að þessi bær hafi verið hvatinn að hugmyndinni um plánetuna Tatooine sem birtist í fyrstu Star Wars-kvikmyndinni 1977. Ólíklegt er þó talið að Belmont, snjallborg Bill Gates, muni byggja á svipuðum fagurfræðihugmyndum og útlitsmetnaði og bær Soleri. Hugmyndalega verður þó örugglega enginn skortur á framúrstefnulegum tæknilausnum í nýju borg snillingsins Gates. 
 
Trúlega hefði ekki verið ónýtt fyrir hann að hafa við hlið sér í þessu verkefni sinn fyrrum samstarfsfélaga og síðar aðalkeppinaut, Steve heitinn Jobs. Margir telja að ef þeir hefðu aldrei kynnst og unnið saman þá hefðu fyrirtækin Apple og Microsoft aldrei orðið að þeim risaveldum sem þau svo urðu. 
 
Hugsuðirnir og framkvæmdamennirnir Steve Jobs og Bill Gates meðan allt lék í lyndi á milli þeirra.

Skylt efni: snjallborg | Microsoft | Bill Gates

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.