Sigurður Trausti Karvelsson.
Sigurður Trausti Karvelsson.
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Tilraunastofa fyrir lífgasrannsóknir sett upp

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þorlákshöfn, er á leið í umhverfismat.

Verkefnið gengur út á að þróa nýja aðferð hér á Íslandi við áburðar- og lífgasframleiðslu úr lífrænum úrgangi, sem fellur til við fiskeldi á landi og í landbúnaði. Í áætlunum hefur verið gert ráð fyrir að verksmiðjan verði risin á næsta ári og framleiðsla hafin. Ef allar áætlanir ganga eftir, er gert ráð fyrir að verksmiðjan geti skilað þúsundum tonna af 90% þurri meltu og hafi næringarhlutfall sem henti sem áburður.

Um samstarfsverkefni er að ræða og eru Bændasamtök Íslands, First Water, Orkídea, Ölfus Cluster og færeyska ráðgjafarfyrirtækið SMJ aðilar að því.

Vonast eftir áliti HMS í vor

Að sögn Gyðu Pétursdóttur, verkefnastjóra Terraforming LIFE og tengiliðar landeldisdeildar hjá Bændasamtökum Íslands, hefur matsáætlun fyrir umhverfismat Terraforming LIFE verið skilað inn til Húsnæðis-, mannvirkja- og skiplagsstofnunar (HMS). „Matsáætlunin hefur verið unnin af EFLU fyrir hönd verkefnisins og lýsir því hvernig staðið verður að mati á umhverfisáhrifum verkefnisins.

Næstu mánuði tekur við lögbundið kynningar- og umsagnarferli. Gert er ráð fyrir að matsáætlunin verði auglýst opinberlega og að almenningur, hagaðilar og aðrir sem málið varðar fái tækifæri til að kynna sér áætlunina og koma á framfæri athugasemdum.

Að því loknu verður unnið að gerð umhverfismatsskýrslu í byrjun næsta árs sem einnig fer í lögbundið umsagnarferli áður en álit HMS liggur fyrir, sem við vonumst eftir að verði í vor,“ segir Gyða um ferlið fram undan.

Tilraunastofa um lífgasnýtni

Terraforming LIFE hefur sett upp tilraunaaðstöðu fyrir lífgasrannsóknir sem gerir mögulegt að rannsaka og meta mögulega nýtingarmöguleika á lífgasi miðað við ólíka lífræna hliðarstrauma, en það er aukaafurð úr áburðarframleiðsluferlinu. Að sögn Sigurðar Trausta Karvelssonar, yfirumsjónaraðila Terraforming LIFE og verkefnastjóra rannsókna og þróunar hjá First Water, er tilraunastofunni ætlað að styðja við rannsóknir á nýtingu fiskeldismykju úr landeldi til lífgasframleiðslu og auka þekkingu á því hvernig fiskeldismykja í bland við aðra hliðarstrauma getur stuðlað að framleiðslu endurnýjanlegrar orku og endurvinnslu næringarefna.

„Markmið rannsóknanna er að afla gagna um lífgasnýtni mismunandi hráefna og bæta skilning á því hvernig best megi nýta þau sem auðlind. Niðurstöðurnar munu nýtast við þróun framtíðarlausna fyrir lífgasframleiðslu á Íslandi og styðja við markmið um aukna hringrás lífrænna efna og næringarefna.

Sambærileg aðstaða hefur ekki verið fyrir hendi á Íslandi hingað til og því verður nú hægt að meta hvernig fiskeldismykja í bland við aðra hliðarstrauma, til dæmis svínamykju, nýtist til lífgasframleiðslu. Sú þekking mun styðja við frekari uppbyggingu lífgaslausna á Íslandi og er mikilvægt skref fyrir Terraforming LIFE-verkefnið,“ segir Sigurður Trausti.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...