Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Engar vísbendingar eru um að SARS-CoV-2 veiran, sem veldur COVID-19 sjúkdómnum, berist með matvælum samkvæmt áliti Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.
Engar vísbendingar eru um að SARS-CoV-2 veiran, sem veldur COVID-19 sjúkdómnum, berist með matvælum samkvæmt áliti Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.
Fréttir 11. mars 2020

Takmarkað aðgengi og farið að tilmælum landlæknis

Höfundur: Vilmundur Hansen

Engar vísbendingar eru um að SARS-CoV-2 veiran sem veldur COVID-19 sjúkdómnum berist með matvælum samkvæmt áliti Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Þrátt fyrir það hafa íslenskir matvælaframleiðendur gert ráðstafanir til að takmarka aðgengi og draga þannig úr smithættu.

Talsmenn Matfugls og Mjólkursamsölunnar segjast vera búnir að takmarka aðgengi að fyrirtækjunum og fara eftir tilmælum landlæknis.

Allir fundir rafrænir

„Gæðaráð Mjólkursamsölunnar er í reglulegu sambandi við Embætti landlæknis og við höfum breytt starfseminni til að aðlaga okkur að þessum nýju aðstæðum,“ segir Sunna Gunnars Marteinsdóttir, samskiptastjóri Mjólkursamsölunnar.

Sunna Gunnars Marteinsdóttir, samskiptastjóri Mjólkursamsölunnar.

„Við höfum aflýst öllum ónauðsynlegum heimsóknum og einungis starfsfólk hefur aðgang að húsunum nema nauðsyn krefji. Auk þess eiga allir fundir starfsfólks við utanaðkomandi að fara fram á netinu. Uppsetningu og viðhaldi véla hefur einnig verið frestað í óákveðinn tíma. Það má því segja að einungis sé um allra nauðsynlegustu starfsemi að ræða.“

Sunna segir að ef í ljós komi að smit greinist hjá starfsmanni MS verði unnið með það í samstarfi við Embætti landlæknis. „Við reynum að takmarka samskipti fólks milli deilda innanhús eins og hægt er og flestir innanhúsfundi rafrænir. Starfsmönnum er skammtaður matur tilbúin á disk og því fólk ekki að hittast að óþörfu ef hægt er.“

Förum að fyrirmælum landlæknis

Sveinn Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls ehf, segir að fyrirtækið sé búið að loka fyrir allar heimsóknir og að enginn hafi aðgang að fyrirtækinu nema starfsmenn.

Sveinn Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls ehf.


„Við erum búin að loka fyrir allar heimsóknir í okkar fyrirtæki hvort sem það eru sölumenn eða aðrir sem vilja kynna sér starfsemina. Svo er það Embætti landlæknis að ákveða hvað verður gert ef það kemur í ljós að einhver starfsmaður innan fyrirtækisins smitist og mæti til vinnu án þess að vita af því. Við báðum starfsfólk að veita okkur upplýsingar um hvort það hafi verið á ferðalagi á svæðum sem eru skilgreind hættusvæði eða séu á leiðinni á slík svæði. Því var vel tekið og ekkert sem bendir til að um slík ferðalög hafi verið að ræða eða séu á döfinni. Við erum því að reyna að girða fyrir smit eftir bestu getu.

Mér skilst að veiran smitist ekki með matvælum en við munum að sjálfsögðu fara eftir fyrirmælum landlæknis ef staðan breytist og ég er sannfærður um að embættið hafi góða yfirsýn og muni bregðast rétt við.“ 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.