Frá Stöðvarfirði.
Frá Stöðvarfirði.
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Höfundur: Þröstur Helgason

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arnardóttur, eiganda jarðarinnar Óseyrar í Stöðvarfirði, um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð sveitarfélagsins vegna ágangs búfjár á jörðina. Málskostnaður féll niður.

Hrefna krafðist þess að viðurkennd yrði bótaábyrgð Fjarðabyggðar vegna tjóns sem orðið hefði frá 11. júní 2023 til 30. júní 2025. Hún og eiginmaður hennar hafa stundað skógrækt á Óseyri frá árinu 2007. Ekki er haldið búfé á jörðinni.

Óumdeilt var fyrir dómi að Hrefna hefði orðið fyrir tjóni á gróðri vegna beitar sauðfjár. Ágreiningurinn laut hins vegar meðal annars að því hvort sveitarfélaginu hefði borið að láta smala fénu samkvæmt 33. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Hrefna byggði á því að féð hefði gengið úr öðrum heimalöndum inn á Óseyri og sveitarfélaginu því borið að láta smala því. Fjarðabyggð taldi hins vegar að féð hefði komið úr afrétti eða sumarbeitilöndum þar sem það gekk laust.

Dómurinn taldi gögn málsins sýna að beitilönd einstakra jarða í sveitarfélaginu væru notuð með líkum hætti og afréttir. Fram kom að fé væri rekið úr heimalöndum til sumarbeitar á fjalllendi, þar sem girðingar milli eignarlanda væru víða ekki fyrir hendi, og síðan smalað að hausti samkvæmt gangnaboðum.

Ekki lá fyrir hvaðan sauðféð sem varð tilefni beiðna Hrefnu um smölun árin 2023 og 2024 hafði komið. Að mati dómsins var því ekki sýnt fram á að um ágang búfjár úr einu heimalandi í annað hefði verið að ræða og þar með ekki sýnt fram á skyldu Fjarðabyggðar til smölunar á þeim lagagrundvelli sem málsóknin byggðist á.

Dómurinn tók jafnframt fram að innviðaráðuneytið hefði áður talið málsmeðferð Fjarðabyggðar vegna beiðni um smölun árið 2024 ekki samræmast stjórnsýslulögum og synjun sveitarfélagsins því ólögmæta. Það breytti þó ekki niðurstöðu dómsins um skaðabótaábyrgðina.

Dómurinn var kveðinn upp þann 15. október.

Skylt efni: Sauðfé | austurland

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...