Landsliðsmennirnir í opnum flokki æfðu vel fyrir EM, jafnt andlega sem líkamlega eins og sjá má á strákunum okkar.
Landsliðsmennirnir í opnum flokki æfðu vel fyrir EM, jafnt andlega sem líkamlega eins og sjá má á strákunum okkar.
Líf og starf 12. ágúst 2026

Svíinn og þingeyski bóndinn

Höfundur: Björn Þorláksson

Ég hitti þingeyskan bónda fyrir skemmstu, roskinn spilamann sem fylgist töluvert með bridds á netinu þótt hann sé að mestu hættur að spila sjálfur. Hann er af gamla skólanum er kemur að sagnstíl og vill að allir eigi fyrir sínu þegar meldað er á spilin. „Þessar meldingar sem nú eru í tísku eru orðnar eitt helvítis rugl og havarí,“ sagði sá gamli. „Vita menn ekki að hugaríþrótt eins og bridds er íþrótt rólyndis og íhugunar?“ bætti hann við. „Þeir sem þykjast bestir í heimi eru farnir að þynna svo voðalega út allar hendur, að það er opnað á drasli og svo þykjast þeir oft eiga langliti sem þeir eiga alls ekki og enginn veit neitt lengur hvað er að gerast við borðið!“ sagði bóndinn.

Þegar ég fylgdist með viðureign Svía og Íslendinga á Evrópumótinu í Riga fyrir skemmstu varð mér hugsað til þessara orða. Var kannski allt betra í ganla daga? Hvert sem svarið er við þeirri spurningu hefði bóndanum sennilega ekki þótt mikið varið í Svíann Nystrom sem hindraði á fjórum spöðum með tíuna sjöundu í fyrstu hendi á jöfnum hættum á meðan fulltrúi Íslands lét 3 spaða duga. Þar sem opnað var á fjórum sat Stefán Jóhannsson í suður og meldaði blessunarlega 5 hjörtu, 100 út en á hinu borðinu varð lokasamningurinn 4 hjörtu í suður.

Íslendingarnir voru heppnir að gefa aðeins út tvo impa í spilinu, því eins og glöggir lesendur Bændablaðsins hafa uppgötvað hriktir ekki í fjórum spöðum.

„Þeir eru oft heppnir, þessir Svíar,“ myndi þingeyski bóndinn kannski segja ...

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...