Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Sveitarstjórnir lýsa þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda
Mynd / Bbl
Fréttir 3. nóvember 2020

Sveitarstjórnir lýsa þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda

Höfundur: smh

Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sendt frá sér sameiginlega ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs haustið 2020.

 „Byggðarráð Húnaþings vestra og sveitastjórnir Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu afurðastöðvaverðs haustið 2020. Sauðfjárrækt er mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í dreifbýli. Í þessum sveitarfélögum var rúmlega 21% af framleiðslu kindakjöts árið 2019.

Á undanförnum árum hafa orðið ábúendaskipti á þónokkrum bújörðum í sveitarfélögunum og yngra fólk með fjölskyldur tekið við. Þessar fjölskyldur efla samfélagið, styðja við þjónustu ásamt því að halda uppi atvinnustigi.

Líkt og í öðrum rekstri er mikilvægt að sauðfjárbændur fái viðunandi verð fyrir sína vöru og hafi þannig forsendur til áætlanagerðar og ákvarðanatöku. Því er skorað á afurðastöðvar að gefa út afurðaverð 2021 fyrir komandi áramót.

Samkvæmt samantekt Landssamtaka sauðfjárbænda var afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda á síðasta ári það lægsta sem finnst í Evrópu og miðað við nýbirtar verðskrár 2020 er vegið meðalverð 502 kr./kg. Hefði afurðaverð fylgt almennri verðlagsþróun frá 2014 ætti það að vera 690 kr./kg. Því vantar enn tæpar 200 kr./kg. upp á afurðastöðvaverð fylgi verðlagsþróun.

Í heimsfaraldri vegna COVID-19 fengu Íslendingar áminningu um mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu. Skapa þarf greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvælaframleiðslu, segir í ályktuninni.

Hún var send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda, afurðastöðva landsins og á fjölmiðla.

 

 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.