Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Subaru  Outback Lux.
Subaru Outback Lux.
Á faglegum nótum 9. júní 2021

Subaru Outback LUX 169 hestafla bensínbíll

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Laugardaginn 8. maí frumsýndi BL nýjan Subaru Outback og að frumsýningu lokinni fékk ég bílinn til prófunar. Hugmyndin var að taka stuttan „rúnt“ til að finna hvernig hann væri, en stutti rúnturinn endaði í tæpum 300 km. Það var bara svo gaman að keyra hann í góða veðrinu sunnudaginn 9. maí.

Þegar maður kveikir á takka sem er við gírstöngina kviknar á aukamyndavél sem sýnir niður á hægra framhjól.

Kraftmikil vél sem eyðir litlu

Í fyrstu tók ég innanbæjarrúnt og fannst mér bíllinn lipur í akstri við þær aðstæður sem ég prófaði hann.

Bakkmyndavélin skýr og góð og ef maður er að bakka þröngt er hægt að kveikja á myndavélarauga sem staðsett er neðan á hægri hliðarspeglinum og séð hægra framhjólið til hliðar á skjánum við bakkmyndavélina (þetta finnst mér sniðugur og góður útbúnaður).
Þrátt fyrir að ég hafi verið frekar þungur með hægri fótinn í hvert sinn er ég var að ná umferðarhraða í innanbæjarumferðinni, þá var ég ekki að eyða nema 10,2 lítrum á hundraðið. Næst var það langkeyrsla, en þar var ég að eyða 7,7 lítrum á hundraðið. Uppgefin meðaleyðsla í blönduðum akstri er 8,6 lítrar á hundraðið.

Fjöðrun fín á malarvegi

Undanfarið hefur verið frekar þurrt og því er mikil lausamöl á malarvegum eins og í Heiðmörk, en þrátt fyrir mikla lausa möl á yfirborði malarvegsins fannst mér hann stýra vel í beygjur og þegar kom að holunum var fjöðrunin að vinna vel. Fann varla fyrir minnstu holunum og litlu þvottabrettunum sem voru á veginum. Að vísu þurfti ég að skola af bílnum rykið eftir malaraksturinn þar sem að varla sást út um afturrúðuna í baksýnisspeglinum eftir malaraksturinn (kunni ekki við að bjóða frúnni í bíltúr á grútskítugum, nýjum bíl).

Tók svo tæplega 200 km hring á malbiki og fann ekki fyrir þreytu, bílstjórasætið fór vel með mig og í alla staði þægilegt að keyra bílinn.

Þarna má sjá að hraðastillirinn er stilltur á 95 en er kominn niður í 31 eltandi næsta bíl í hringtorgi.

Mikið af öryggis- og þægindabúnaði

Þegar ég var að koma í bæinn stillti ég hraðastillinn á 95 eftir að ég kom út úr hringtorginu við Hveragerði. Umferðin var mishröð alla leið í bæinn og alltaf fylgdi bíllinn næsta bíl á undan og meira að segja í hringtorginu við Rauðavatn fór hraðinn niður fyrir 30, en alltaf las bíllinn þann sem fyrir framan var og það var ekki fyrr en að ég var kominn niður á Bústaðaveg að ég snerti fyrst bremsur.

Hraðastillirinn sá algjörlega um aksturinn. Meira að segja snögghemlaði bíllinn í smá stund þegar einn ákveðinn ökumaður stakk sér inn í umferðina af hliðarakrein fyrir framan mig og þá fann ég hvernig neyðarbremsubúnaðurinn virkaði.

Eins og alla bíla sem ég prófa þá hávaðamældi ég bílinn á 90 km hraða og fannst mér mælingin koma vel út, 68,9 db er mjög gott (a.m.k. 2 rafmagnsbílar hafa mælst með meiri hávaða inni í farþegarýminu).

Akreinalesarinn les vel ógreinilegar merkingarnar sem eru ansi illa farnar eftir veturinn.

Ekkert varadekk, bara pumpa og þéttivökvi.

Ekki allt hamingja, en samt mikil

Það var bara tvennt sem ég gat fundið að, stefnuljósin þurfti ég að taka sjálfur af þegar ég var bara að skipta um akrein, en nokkrum sinnum þegar ég ætlaði að taka þau af gaf ég stefnumerki í hina áttina (kannski bara klaufaskapur í mér).

Ekkert varadekk er í bílnum og það finnst mér mikill mínus.

Plúsarnir eru miklu fleiri s.s. hiti í stýri, góður hraðastillir, margir loftpúðar ef maður lendir í árekstri og fleira.

Verð á Subaru Outback er frá 7.590.000 á Outback Premium, en bíllinn sem var prófaður er LUX og kostar 8.490.000. Allir Outback eru með sömu bensínvélina, 2.498cc, sjálfskiptur og 169 hestöfl.

Helstu mál og upplýsingar:

Lengd 4.870 mm
Hæð 1.675 mm
Breidd 1.875 mm

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.