Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Fréttir 20. apríl 2026

Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Í frumvarpi atvinnuvegaráðherra, sem er til meðferðar á Alþingi eftir umsagnaferli, er gert ráð fyrir að ný Stofnun atvinnuveganna taki til starfa 1. janúar 2027 með sameiningu Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Matvælastofnun hóf störf 1. janúar 2008 með sameiningu Landbúnaðarstofnunar, matvælasviðs Umhverfisstofnunar og matvælasviðs Fiskistofu.

Öflugt þekkingarsamfélag

Í greinargerð með frumvarpinu segir að viðfangsefni Matvælastofnunar og Fiskistofu séu að mörgu leyti svipuð og starfsstöðvar reknar á svipuðum stöðum á landinu. Tækifæri séu því til að efla stjórnsýsluna og styrkja faglegar stoðir eftirlitsins.

Stærri stofnun getur boðið upp á öflugt þekkingarsamfélag með sérhæfðum teymum og markvissari og faglegri þróun starfsmanna.

Ítrekaðar athugasemdir ESA

Í greinargerðinni segir einnig að um árabil hafi eftirlit með matvælum verið til skoðunar en ítrekaðar athugasemdir verið gerðar af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá árinu 2010 við annmarka á skipulagi eftirlits hér á landi hvað varðar samræmingu milli eftirlitsaðila á sviði matvæla.

Í júlí 2024 sendi ESA íslenskum stjórnvöldum formlegt áminningarbréf þar sem farið var fram á að opinbert eftirlit á sviði  23  matvæla, fóðurs og dýraheilbrigðis færi fram á skilvirkan hátt og í samræmi við EES- reglur. Er með frumvarpinu um Stofnun atvinnuveganna ætlunin að bregðast við athugasemdum ESA og tryggja að opinbert eftirlit sé í samræmi við EES-samninginn.

Skylt efni: Matvælastofnun | Mast | Fiskistofa

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.