Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Stöðug fækkun sláturlamba
Fréttir 17. nóvember 2022

Stöðug fækkun sláturlamba

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Stöðug fækkun sauðfjár hefur verið á undanförnum árum á Íslandi. Samkvæmt nýjum sláturtölum fækkaði sláturlömbum um tæplega tuttugu þúsund á milli áranna 2021 og 2022 og hefur fækkunin verið samfelld frá 2017. Hins vegar var slátrun á fullorðnum ám mjög sambærileg við síðasta ár, sem þykir benda til þess að áframhald verði í fækkun sláturgripa haustið 2023.

Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands, segir ljóst að bregðast þurfi við þessari stöðugu fækkun fjár svo það endi ekki með framboðsskorti á íslenskum markaði. Ef ekki takist að leiðrétta verð til bænda enn frekar en orðið er, þá verði fækkunin áfram mikil. „Eina leiðin til að stöðva þessa þróun, sem er búin að vera viðvarandi síðustu ár, er að tryggja bændum afkomu,“ segir Trausti.

Samkvæmt gögnum frá Matvælastofnun komu 445.511 dilkar til slátrunar á síðasta hausti. Til samanburðar var dilkafjöldinn á síðasta ári 465.324, en 560.465 árið 2017.

Sala eykst en framleiðsla dregst saman

Sala á dilkakjöti hefur hins vegar aukist síðustu misseri. Sé litið til síðustu 12 mánaða frá september síðastliðnum var salan um 7.254 tonn og hefur aukist um 14,3 prósent miðað við sama tímabil frá árinu á undan. Samkvæmt nýjum framleiðslutölum fyrir dilkakjöt kemur fram að framleiðslan var mjög svipuð nú í september og á síðasta ári. Hins vegar minnkaði framleiðslan nú í október um tæp 1.600 kíló, miðað við október á síðasta ári.

Birgðastaða kindakjöts í lok ágústmánaðar var í sögulegu lágmarki á þessum árstíma á þessari öld, eða um 382 kíló. Einungis voru minni birgðir í lok ágústmánaðar árið 2011, eða um 281 kíló. Á því ári var útflutningur hins vegar með mesta móti, en þá voru flutt út 1.138 tonn kindakjöts.

Hvatt til betri markaðssetningar

Í aðsendri grein Trausta og Hafliða Halldórssonar, framkvæmdastjóra Icelandic Lamb, eru afurðastöðvar hvattar til að sinna betur markaðssetningu á lambakjöti, ýmis tækifæri séu til að auka virði afurðanna sem á endanum geti skilað betri kjara til bænda. Raunvirði lambakjöts á Íslandi sé mun hærra en íslenskir neytendur eigi að venjast.

Þeir segja að það geti því verið sársaukafullt fyrir neytendur að ganga í gegnum nauðsynlegar breytingar í átt að hærra verði nema að þær séu vel rökstuddar af þeim sem bera ábyrgð á markaðssetningu og sölu. Hvergi nema á Íslandi keppi lambakjötið við hvíta kjötið í verði, samkvæmt úreltri aðferðarfræði.

Fjallað er meira um tölulegar upplýsingar úr síðustu sláturtíð og markaðshorfur fyrir íslenskt lambakjöt á bls. 2, 18 og 50. í nýju Bændablaði sem kom út í dag

Skylt efni: fækkun sauðfjár

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.