Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 11. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er fullur af nýrri orku og tilbúinn í ævintýri – já, jafnvel ástarævintýri. Núna er fullkominn tími til að byrja á öllu því sem hann hefur lengi dreymt um, allt það sem þarf að takast á við með framsækni og dirfsku. Vatnsberinn verður að muna að jákvætt viðhorf opnar margar nýjar dyr og færa honum mikla velgengni. Happatölur: 9, 18, 44.

Fiskarnir finna fyrir miklu jafnvægi og innri ró þessa dagana eftir erfitt tímabil. Þeim er ráðlagt að hlusta vel á eigið innsæi því það kemur öllu í réttan farveg. Nú er bara um að gera að njóta hvers augnabliks sem færa ánægju og vellíðan og hver veit nema góður vinur komi á óvart með fallegum skilaboðum eða skemmtilegu boði. Happatölur: 3, 11, 29.

Hrúturinn mætir nýjum degi af krafti. Fram undan eru skemmtilegar áskoranir sem kveikja neista í hversdeginum og má hrúturinn vera viss um að hans traustasta fólk mun styðja öll hans áform. Hann ætti að leyfa sköpunargáfunni að blómstra frjálslega og muna að vera duglegur við að njóta samvista við ástvini. Happatölur: 7, 14, 23.

Nautið má svo sannarlega búast við afar notalegum og afslöppuðum dögum fram undan. Falleg náttúra og góður matur munu veita því mikla ánægju og endurnæringu auk þess sem fjárhagsleg mál eru á góðri leið sem færir aukna öryggiskennd. Nautið má svo endilega gleðja sjálft sig sem mest það má næstu vikur, því … ja, bara hvers vegna ekki? Happatölur: 5, 22, 31.

Tvíburarnir munu njóta lífsins í góðra vina hópi á næstunni þar sem líflegar samræður og nýjar hugmyndir munu veita mikinn innblástur. Tvíburinn sem hefur alltaf átt auðvelt með að heilla fólk í kringum sig með sínum frábæra húmor mun þó nánast tví- ef ekki þríeflast og þarf að gæta þess að fara ekki offari. Hann má vart við því að vera vinsælli. Happatölur: 2, 16, 38.

Krabbinn mun finna fyrir nýjum vindum blása í líf sitt og er ráðlagt að gleyma öllu því gamla og leiðinlega, en heldur stíga skref inn í þann heim sem hann sjálfur vill móta. Honum er einnig ráðlagt að segja já við nýjum tækifærum sem honum bjóðast. Það mun koma skemmtilega á óvart. Happatölur: 4, 12, 27.

Ljónið mun finna fyrir djúpri þörf fyrir ró og næði á næstu dögum, en nú er fullkominn tími til að draga sig aðeins til baka og hlúa að eigin vellíðan og hugðarefnum í einrúmi. Nýir tímar veita ljóninu óvænta gleði og jafnvel innblástur á einhvern óvæntan hátt. Gönguferðir í náttúruna er svo eitthvað sem ljónið ætti að tileinka sér fyrr en síðar. Happatölur: 1, 19, 55

Meyjan mun finna fullkomið jafnvægi og afar mikla sátt í sínu daglega lífi enda blómstrar félagslífið sem aldrei fyrr. Skemmtilegir viðburðir munu fylla dagana og ný sambönd við aðra verða dýpri og innilegri. Eitthvað verður Amor skjótandi örvum sínum og mörg þau sambönd sem verða til á næstu mánuðum verða langlíf. Veldu vel. Happatölur: 8, 17, 33.

Vogin mun sjá mikinn og góðan árangur af miklu erfiði sínu á næstu dögum. Skipulag og nákvæmni munu hjálpa henni að ljúka mikilvægum verkefnum með stæl, hvort sem um ræðir sjúkrapróf skólafólks eða endurskipulagningu lífsins í heild sinni. Vogin verður þó að muna að kvíði og stress gera engum gott, lífið fer ávallt í þann farveg sem því er ætlað. Mundu að slaka á. Happatölur: 6, 25, 42.

Sporðdrekinn er fullur bjartsýni og dásamlegri lífsgleði þessa dagana enda virðist heimurinn opna hverjar dyrnar á fætur annarri. Honum er ráðlagt að halda áfram að horfa fram á við með bros á vör, því nýverið gekk stjörnumerki hans inn í tíma frelsis og jafnvægis. Happatölur: 11, 21, 47.

Bogmaðurinn sýnir mikinn innri styrk og ákveðni þessa dagana og mun í kjölfarið leysa flókið viðfangsefni með miklum glæsibrag og fá verðskuldað hrós, jafnvel hljóta leyndardómsfullt en spennandi tækifæri – sem gæti birst honum að óvörum – en þá er um að gera að hika ekki en grípa það! Happatölur: 10, 28, 50.

Steingeitin mun fyrr en varir ná ótrúlega miklum og góðum árangri í öllum sínum langtíma- markmiðum, sama hversu spennandi eða óspennandi þau eru. Þolinmæði og þrautseigja eru nú loks að skila ávöxtum í ríkum mæli og ætti steingeitin að gefa sér tíma til að fagna öllu því sem hún hefur áorkað. Happatölur: 13, 30, 60

Skylt efni: stjörnuspá

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.