Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 1. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur hvernig skapandi hugmyndir hans fá nú loksins byr undir báða vængi og mun koma fólkinu í kringum sig á óvart með frumlegum lausnum. Frelsi og sjálfstæði eru vatnsberanum mikilvæg núna og hann ætti að taka frá tíma fyrir sjálfan sig til að rannsaka hvers vegna. Happatölur 4, 17, 99.

Fiskurinn veit að senn hefst nýtt tímabil þar sem hann mun blómstra bæði listrænt og tilfinningalega. Ef hann leyfir innsæinu að leiða sig í réttar áttir munu óvænt tækifæri til framgangs skjóta upp kollinum sem á að grípa hið snarasta. Á alla vegu ætti fiskurinn að leyfa draumum sínum að rætast og taka fagnandi á móti því sem honum berst. Happatölur 4, 19, 42.

Hrúturinn upplifir orku sína sem er í hámarki um þessar mundir og honum að óvörum er hann tilbúinn að takast á við stórar áskoranir. Varkárni þarf þó að sýna í fjármálum og ætti hrúturinn að forðast hvatvísar ákvarðanir. Hrútur - stígðu út fyrir þægindahringinn, sýndu þitt rétta andlit og opnaðu hjarta þitt. Happatölur 7, 23, 55.

Nautið mun upplifa mikinn stöðugleika og ró á næstunni. Jafnvel enn meir en áður því grunnurinn sem það hefur byggt upp gefur af sér góða hluti. Það ætti að gefa sér tíma til að sinna áhugamálum og njóta náttúrunnar, bara í öllu falli sjá um að heilsa og vellíðan verði í fyrirrúmi. Happatölur 11, 34, 69.

Tvíburarnir finna lífið ólga í sér og verða fjörugt og spennandi gegnum grámóskulega daga maímánaðar, því tvíburarnir eru oft alveg á skjön við alla aðra. Á góðan hátt auðvitað. Einstakir samskiptahæfileikar þeirra opna nýjar dyr, aðallega í vinnunni þar sem þeir eru tilbúnir til að læra eitthvað nýtt og þeim ráðlagt að nýta þessa miklu orku til að skapa sér betri framtíðar. Happatölur 5, 27, 88.

Krabbinn leyfir tilfinningum sínum að fá góða útrás og nær með því dýpri tengslum við sína nánustu. Hlutir sem hafa valdið kvíða munu leysast farsællega og ætti krabbinn að leita inn á við og hlusta á innsæi sitt þegar kemur að stórum ákvörðunum í lífinu. Happatölur 2, 14, 50.

Ljónið stendur á tímamótum þar sem athyglin mun beinast að því á jákvæðan hátt, þá að andlegri heilsu í stað yfirborðslegrar aðdáunar. Metnaður ljónsins með sjálft sig skilar sér í auknu jafnvægi hið innra, og þó það viti að það sé að standa sig ofsalega vel má það þó passa að gleyma ekki auðmýktinni, einni gylltustu dyggðinni. Happatölur 1, 18, 77.

Meyjan finnur hvernig spennandi og dularfullur andi svífur yfir vötnum og hún laðast að nýjum og spennandi hlutum. Þetta er tími persónulegs þroska og innri styrks þar sem nauðsynlegt er að leyfa gömlum vönum að fjara út og faðma að sér nýja sýn á lífið. Happatölur 8, 31, 91.

Vogin sér fyrir sér og veit að skipulag og yfirvegun verða lykillinn að velgengni á þessu tímabili. Hún mun finna lausnir á gömlum vandamálum sem hafa plagað hana og ef hún gefur sér nægan tíma til að hvílast og endurhlaða batteríin eru henni allir vegir færir. Góðar fréttir eru í vændum. Happatölur 9, 36, 61.

Sporðdrekinn upplifir skyndilegt jafnvægi á því sem hefur verið að plaga hann og mun leysa úr flóknum málum með sanngirni. Félagslíf hans blómstrar í kjölfarið og í kortunum eru fjölmargir nýir félagar. Ekki nóg með það en einnig eru fjármálin á uppleið og ekki úr vegi að leyfa sér smá dekur. Happatölur 6, 22, 45.

Bogmaðurinn gæti staðið frammi fyrir spennandi breytingum, ekki síst þegar bjartsýni hans smitar út frá sér og laðar að góða hluti. Hann þarf að gæta þess að fara ekki offari og hafa einhvern hjá sér sem getur togað hann niður á jörðina ef allt ætlar um koll að keyra. Traustur vinur getur gert kraftaverk. Happatölur 3, 29, 64.

Steingeitin uppsker laun hins þrautseiga en líkt og þrjóskudýrið sjálft í merkinu, hvikar hún ekki frá upphaflegri áætlun sinni þótt fari yfir stokka og steina til þess. Fjölskyldulíf verður í fyrirrúmi og steingeitin mun skapa hlýlega stemningu í kringum sig. Happatölur 10, 25, 80.

Skylt efni: stjörnuspá

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.