Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Ingibjörg Sigurðardóttir er höfundur bókarinnar.
Ingibjörg Sigurðardóttir er höfundur bókarinnar.
Fréttir 7. apríl 2016

Stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu

Höfundur: smh
Fyrir skemmstu gaf Ferða­mála­deild Háskólans á Hólum út nýja bók um stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu. Höfundur bókarinnar er Ingibjörg Sig­urðar­dóttir, lektor við ferðamáladeild Hólaskóla, en inngangskafla ritar Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, lektor og forstöðumaður Rann­sóknarmiðstöðvar ferðamála.
 
Kápa bókarinnar.
 
Bókin er rituð fyrir stjórnendur, starfsmenn og nemendur í greininni. Fjallað er um atriði eins og öryggismál, vöruþróun, stofnun fyrirtækja, leyfisveitingar, fjármögnun, umhverfismál, áætlanagerð, ráðningu starfsmanna, móttöku gesta, gæði þjónustu og fleira sem lýtur að fagmennsku í stjórnun og rekstri. Sérstakir kaflar eru í bókinni um afþreyingu á sjó og vatni. Áhersla er lögð á að benda lesendum á frekara fræðsluefni um hvert viðfangsefni fyrir sig, auk þess sem listar yfir lög og reglugerðir, gagnlegar vefsíður og fleira leiða lesendur áfram. 
 
Ætlað að mæta aukinni þörf fyrir fræðsluefni
 
Ingibjörg segir að verkefnið eigi sér nokkuð langa forsögu. „Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hefur alla tíð átt farsælt samstarf við atvinnugreinina og stoðkerfi hennar og hefur deildin lagt áherslu á að miðla þekkingu til atvinnugreinarinnar sem og að koma til móts við þarfir hennar. Deildin hefur notið velvilja greinarinnar, við förum mikið með okkar nemendur í vettvangsferðir og fáum aðila úr atvinnulífinu til okkar til að taka þátt í kennslu. 
 
Árið 2007 gaf ferðamáladeild Háskólans á Hólum út handbók fyrir rekstraraðila í hestaferðaþjónustu en sú bók var afrakstur rannsóknar- og þróunarverkefnis í hestaferðaþjónustu. Í því verkefni kom í ljós mikil þörf fyrir aðgengilegt fræðsluefni fyrir þá sem störfuðu í greininni og/eða höfðu hug á að stofna slíkt fyrirtæki. Var þessari bók vel tekið og vegna hvatningar frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtökum Íslands var fljótlega hafinn undirbúningur að gerð fræðsluefnis fyrir aðrar afþreyingargreinar. Á tímabili lá þessi vinna niðri en þróun ferðaþjónustunnar hefur á undanförnum árum verið örari en nokkurn óraði fyrir og var því ljóst á síðasta ári að aukin þörf væri fyrir fræðsluefni um stjórnun og rekstur í ferðaþjónustu.  
 
Á sama tíma og fyrirtækjum fjölgar gríðarlega, eykst krafa um fagmennsku, gæði þjónustu og öryggi gesta. Þessari nýju bók er ætlað að mæta að nokkru marki þessari auknu þörf ferðaþjónustunnar fyrir fræðsluefni fyrir þá sem starfa í greininni eða ætla sér að stofna fyrirtæki í ferðaþjónustu. Einnig nýtist bókin nemendum í ferðamálafræði á öllum skólastigum. Í bókinni er lögð megináhersla á stofnun, stjórnun og rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu en jafnframt er horft sérstaklega til afþreyingar á sjó og vatni. Fyrir tilstuðlan styrks frá Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar reyndist gerlegt að gefa bókina út núna í tengslum við 20 ára afmæli ferðamáladeildar Háskólans á Hólum,“ segir Ingibjörg.
 
Að sögn Ingibjargar var það meðal annars fyrir hvatningu Samtaka ferðaþjónustunnar sem bókin var rituð og gefin út. Útgáfa bókarinnar var styrkt af Starfsmenntaráði og Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaups. Bókin er fáanleg hjá Háskólanum á Hólum (silla@holar.is) og kostar 3.000 krónur. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.