Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Jón Magnús Jónson er annar af tveimur fulltrúum deildar kjúklinga­bænda á Búnaðarþingi 2022.
Jón Magnús Jónson er annar af tveimur fulltrúum deildar kjúklinga­bænda á Búnaðarþingi 2022.
Fréttir 29. mars 2022

Starfsskilyrði greinarinnar efst á baugi

Höfundur: Vilmundur Hansen

Deild kjúklingabænda innan Bændasamtaka Íslands mun ekki leggja fram tillögu á Búnaðarþing að þessu sinni. Starfsskilyrði greinar­innar og tollamál eru það sem er efst á baugi hjá greininni. Full­trúar deildar kjúklingabænda á Búnaðar­þingi 2022 eru Jón Magnús Jónson og Eydís Rós Eyglóardóttir.

Að sögn Jóns verða starfsskilyrði greinarinnar og landbúnaðar í heild efst á baugi hjá kjúklingabændum á þinginu.

„Við í greininni viljum eins og aðrir í landbúnaði fá að njóta viðunandi starfsskilyrða og þar eiga tollamál stóran þátt.“

Ójöfn samkeppni

„Töluvert er flutt inn af fuglakjöti sem er okkur mikið áhyggjumál. Erfitt er fyrir innlend fyrirtæki að keppa við erlenda framleiðslu sem kemur frá risastórum fyrirtækjum. Þar eigum við litla möguleika ef keppa á í verði en alla möguleika ef litið er til gæða framleiðslunnar og heilnæmi.“

Jón segir að þessi staða sé ekki einsdæmi hjá kjúklingabændum því hún eigi við nánast alla landbúnaðarframleiðslu í landinu.

Eldið í góðum farvegi

„Sem betur fer er íslenskt alifugla­eldi vel statt hvað varðar alifuglasjúkdóma og eldið í góðum farvegi. Skimað er reglulega fyrir þeim sjúkdómum sem algengir eru erlendis og engir stofnar eru fluttir inn til framleiðslunnar nema í gegnum einangrunarstöðvar. Þannig lágmörkum við áhættuna á að hingað berist nýir sjúkdómar og með því höldum við niðri notkun á sýklalyfjum,“ segir Jón.

Alifuglabændum hefur fækkað

Að sögn Jóns leggur deild kjúklingabænda ekki fram tillögu á Búnaðarþingi að þessu sinni.
„Alifuglabændum hefur fækkað á síðustu árum. Þó eru starfandi allnokkrir bændur sem hafa þessa atvinnu með öðrum búskap eða starfsemi. Þetta styrkir sveitirnar bæði með atvinnu og ýmsa þjónustu sem þarf við þessi bú.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.