Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri. Boðað var til starfsmannafundar
í gær vegna niðurstöðu vinnumarkaðskönnunar.
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri. Boðað var til starfsmannafundar í gær vegna niðurstöðu vinnumarkaðskönnunar.
Mynd / smh
Fréttir 6. mars 2025

Starfsfólk LbhÍ og Hóla meðal ósáttustu starfsmanna ríkisins

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Hólum eru meðal neðstu ríkisstofnana í niðurstöðum vinnumarkaðskönnunar Sameykis. Skólarnir fá sérstaklega lágar einkunnir fyrir stjórnun og vinnuskilyrði.

Sameyki heldur utan um mælingar á Stofnun ársins en árlega leggur það könnun fyrir starfsfólk hinna ýmsu stofnana og starfsstöðva. Matið er byggt á níu þáttum á innra starfsumhverfi þeirra; trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægju, stolti og jafnrétti.

Óánægja meðal starfsmanna LbhÍ

Samkvæmt niðurstöðum mælinga fyrir árið 2024 fékk Landbúnaðarháskóli Íslands þriðju lægstu einkunn meðal stærri stofnana ríkisins. Þar af mælist skólinn neðstur fyrir stjórnun og næstneðstur í flokknum launakjör.

Á fundi sem haldinn var meðal starfsmanna LbhÍ í kjölfar slæmra niðurstaðna sömu mælingar í fyrra kom fram að starfsfólk upplifði að stjórnunarhættir skólans hefðu breyst mjög í átt til „toppstjórnunar“ á síðustu árum og að teymisvinna og ábyrgðardreifing væri í lágmarki. Einnig kom þar fram óánægja með hve hægt gengi að semja um laun og að lítið traust væri meðal starfsmanna að laun væru ákveðin af sanngirni.

Skólinn fær verri einkunn í ár en samkvæmt upplýsingum frá Ragnheiði I. Þórarinsdóttur, rektor LbhÍ, verða niðurstöðurnar ræddar innan skólans. „Við munum ræða niðurstöðurnar á framkvæmdastjórnarfundi og síðan fara yfir málið með starfsfólki,“ segir hún en boðað var til fundar með starfsfólki í gær, þann 5. mars, vegna niðurstöðu könnunarinnar.

Óásættanleg vinnuskilyrði í Hólaskóla

Háskólinn á Hólum hlaut næstlægstu einkunn meðal meðalstórra ríkisstofnana og fékk m.a. lægstu einkunn fyrir vinnuskilyrði og var næstlægst í flokki sem metur starfsanda.

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor skólans, bendir á að fjöldi svarenda við skólann hafi aðeins verið 24 manns og vikmörk þar af leiðandi ansi há. „Það er ánægjulegt að sjá að starfsmenn upplifa meiri sveigjanleika og sjálfstæði í starfi í ár en í fyrra, sem eru atriði sem við höfum lagt áherslu á síðasta árið. Slæm upplifun starfsmanna af vinnuskilyrðum teljum við að samsvari þeirri óásættanlegu stöðu sem Háskólinn á Hólum hefur verið í síðastliðin ár varðandi húsnæði.“

Hólmfríður segir að stór hluti skólabyggingarinnar á Hólum hafi verið lokaður af vegna myglu í lok ársins 2023 en á sama tíma þurfti fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans að flytja úr húsnæði sínu á Sauðárkróki yfir til Hóla. „Við það hafa vinnuskilyrði klárlega versnað, þegar starfsmannafjöldi helst óbreyttur en fermetrafjöldi hefur snarminnkað. Enn fremur er skólabyggingin á Hólum orðin ansi gömul með úreltar lausnir hvað varðar lýsingu, loftgæði og hljóðvist og það endurspeglast í upplifun starfsmanna af vinnuskilyrðum. Vegna þessa hefur fjöldi starfsmanna færst yfir í að vinna sína vinnu að mestu í fjarvinnu, sem einnig hefur áhrif á starfsanda innan skólans.“

Stórum hluta skólabyggingar á Hólum var lokað vegna myglu í lok árs 2023.

Berjast fyrir bættu húsnæði

Hólmfríður segir því gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld tryggi nýtt húsnæði undir starfsemi Háskólans á Hólum, með veitingu fjármagns í nýja aðalbyggingu, lagareldishús á Sauðárkróki og uppbyggingu hesthúsasvæðisins á Hólum. „Stjórnendur skólans hafa unnið ötullega að því að tryggja slíkar fjárveitingar síðastliðin ár og ýmsir áfangasigrar unnist, svo sem leyfi til áætlanagerðar og undirbúnings lagareldishúss á Sauðárkróki með fjárveitingu í fjárlögum 2025. Við munum halda áfram að berjast fyrir bættu húsnæði fyrir starfsmenn og þá sérstaklega með fjárveitingu fyrir nýrri aðalbyggingu eigi síðar en í fjárlögum 2026.“

Mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fleiri stofnana og nær hún til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Í ár tóku tæplega 17.400 manns þátt í könnuninni.

Niðurstöður könnunarinnar Stofnun ársins 2024 var tilkynnt á hátíð Sameykis þann 13. febrúar sl. en þær má einnig nálgast á vef félagsins. Þar segir að niðurstöður könnunarinnar veiti bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi að því er fram kemur á vef Sameykis. 

Skólarnir hluti af nýrri samstæðu

Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri leggur til að Háskóli Íslands, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands ásamt tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum og Landsbókasafni verði að háskólasamstæðu. Samkvæmt tillögunni mun sameiningin koma til framkvæmda árið 2027. Þetta kom fram í kynningu starfshópsins þann 4. mars. „Aðalávinningurinn felst í öflugri stofnunum sem bjóða betri þjónustu á landsvísu og eru betur samkeppnishæfar á alþjóðavettvangi. Fjármagn sem sparast nýtist til aukinnar skilvirkni í fjármögnun háskólastigsins,“ segir í umsögn með tillögunni.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

Þýskar heimsbókmenntir
3. desember 2025

Þýskar heimsbókmenntir

Laufey
3. desember 2025

Laufey

Gjörunnin matvæli ógn við lýðheilsu
4. desember 2025

Gjörunnin matvæli ógn við lýðheilsu

Þúsund ár og þúsund enn
4. desember 2025

Þúsund ár og þúsund enn

Góður árangur náðst
4. desember 2025

Góður árangur náðst

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f