Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Stækka ræktarland og fjölga vörutegundum
Mynd / smh
Fréttir 20. júní 2024

Stækka ræktarland og fjölga vörutegundum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Hvítlauksbændurnir í Neðri-Brekku í Dölum fengu nýlega tvo styrki úr Matvælasjóði, sem gerir þeim kleift að fara í frekari framþróun með sína ræktun og verðmætasköpun úr hliðarafurðunum.

„Við vorum í Suður-Frakklandi að kynna okkur hvítlauksyrki sem við gætum mögulega notað hjá okkur,“ segir Haraldur Guðjónsson, sem ásamt konu sinni, Þórunni Ólafsdóttur, hóf ræktun á hvítlauk síðasta haust til markaðssetningar á Íslandi. „Stækkun stendur nú yfir á landinu sem við ætlum að nota undir ræktunina í haust, en við förum úr 0,4 hektara í tvo hektara – þar sem ræktunarsvæðið verður um 1,2 hektarar. Viðtökurnar hafa verið þannig að okkur fannst það liggja beint við að stækka landið. Það liggja tvö tún að okkar landi sem við fáum afnot af undir ræktunina.“

Blóðbergsblandað hvítlaukssalt

Haraldur segir að annar styrkurinn sé úr Afurð, en þar séu verkefni sem séu komin af hugmyndastigi en afurðirnar þó ekki tilbúnar til markaðssetningar. „Það verður einmitt verkefnið í haust að þróa fjórar vörur til viðbótar hvítlaukssaltinu sem við settum á markað í byrjun þessa árs – sem er í raun hliðarafurð af sjálfri hvítlauksræktuninni. Til viðbótar við hvítlaukssaltið Skjöld, sem hefur fengið góðar viðtökur, ætlum við að koma með hvítlaukssalt sem verður blandað blóðbergi úr sveitinni, hvítlauksolíu, hvítlauksmauk og hvítlauks-confit – sem ekki er til hér á Íslandi en er hvítlaukur sem hitaður er í olíu við vægan hita og hægt er til dæmis að smyrja beint á brauð eða hvað sem er.“

Einnig fengu þau styrk úr Fjársjóði, til að afla sér frekari þekkingar um hvítlauksræktunina og möguleg hvítlauksyrki til notkunar í Dölunum.

Fimm til tíu prósent hliðarafurðir

Hliðarafurðirnar úr hvítlauksræktuninni eru nánar tiltekið afgangs hvítlauksgeirar, sem ná ekki stærðarviðmiðum til að verða útsæði. Það sem afgangs varð frá síðasta hausti, þegar þau settu niður í fyrsta skipti lauk til markaðssetningar, var notað til þróunar og framleiðslu á Skildi. Haraldur segir að reikna megi með að um fimm til tíu prósent uppskerunnar gangi þannig af og sé hægt að nýta til verðmætasköpunar með framleiðslu á nýjum afurðum.

Raunin sé sú að framleiðslan úr hliðarafurðunum stefni í að verða álíka verðmæt og sjálfur hvítlaukurinn, en flestir sem séu stórtækir í hvítlauksræktun hendi bara þessum afgangsgeirum.

„Við reiknum með að fara í þessa vöruþróun á nýjum afurðum í október,“ segir Haraldur að lokum.

Skylt efni: Hvítlaukur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.