Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Gunnar Þorgeirsson, garðyrkju­bóndi í Ártanga í Grímsnesi og formaður Sambands garðyrkju­bænda.
Gunnar Þorgeirsson, garðyrkju­bóndi í Ártanga í Grímsnesi og formaður Sambands garðyrkju­bænda.
Fréttir 14. maí 2018

Spurning hvort afurðir standi undir lýsingakostnaði

Höfundur: Vilmundur Hansen

Garðyrkjubændur sem nota lýsingu í gróðurhúsum standa frammi fyrir þeirra spurningu hvort afurðaaukningin vegna lýsingarinnar standi undir kostnaði.

Í búvörusamningnum er stefnt að því að endurgreiða bændum allt að 95% af flutningskostnaði raforku. Það sem af er þessu ári hefur endurgreiðslan verið 63%.

Gunnar Þorgeirsson, garðyrkju­bóndi í Ártanga í Grímsnesi og formaður Sambands garðyrkju­bænda, segir að í búvöru­samningnum sé stefnt að allt að 95% niðurgreiðslu á flutningi á raforku til garðyrkjubænda vegna gróðurhúsalísingar. „Á síðasta ári var niðurgreiðslan 73% af flutningskostnaðinum og að hluta til voru það fjármunir sem áttu að fara til að niðurgreiða flutningskostnaðinn á þessu ári, 2018. Miðað við fyrstu mánuði þessa árs er endurgreiðsluhlutfallið ekki nema 63%.“

Heildarupphæðin til niðurgreiðslu á flutningskostnaði raforku vegna gróðurhúsalýsingar garðyrkjubænda samkvæmt fjárlögum á síðasta ári var 270 milljónir en af þeirri upphæð fóru 30 milljónir inn á þetta ár. Eftir stóðu því 240 milljónir.“

Spurning um kostnað

„Gunnar segir að hver og einn garðyrkjubóndi verði að meta það í kostnaðarrekstri hvort það svari kostnaði að lýsa húsin eða ekki og ég veit að nokkrir hafa komist að þeirra niðurstöðu að það borgar sig alls ekki.

Það er ekki almenn stefna Sambands garðyrkjubænda að menn eigi að hætta að lýsa húsin hjá sér en að sjálfsögðu er umræða um það í gangi á milli þeirra sem eru að nota lýsingu.

Vandinn er sá að þegar endurgreiðsluhlutfallið er komið niður í 63% þá er orðið spurning um hvort afurðirnar sem verið er að framleiða standi undir lýsingakostnaðinum.“

Föst upphæð samkvæmt búvörusamningnum

Lýsingakostnaður garðyrkjubænda hefur verið í umræðunni í mörg ár.
„Allt þar til við gerðum síðustu búvörusamninga þurftu garðyrkju­bændur að semja við fjárlaganefnd um endur­greiðsluupphæðina á hverju ári.

Samkvæmt núgildandi búvöru­samningi er um að ræða fasta krónutölu, 280 milljónir, sem á að fara til niðurgreiðslu á flutningskostnaði raforkunnar og eftir því sem lýsingin eykst lækkar endurgreiðsluhlutfallið.

Ekki hjálpar heldur til þegar búið er að eyða hluta fjármagnsins fyrirfram,“ segir Gunnar.

Flutningskostnaður á raforku hefur hækkað umtalsvert

„Hvað verð á raforku varðar hefur í mörg ár verið reynt að semja við raforkusala um að garðyrkjan fái raforkuna á sama verði og aðrir stórkaupendur. Því miður er sú umræða gersamlega strand sem stendur í gjaldskrá rafveitnanna og ekki vilji hjá þeim að koma til móts við garðyrkjubændur um lækkun hennar.

Flutningur á raforku hefur einnig hækkað umtalsvert á síðustu árum og langt umfram annað verðlag og sérstaklega gjaldskrá Landsnets. Það segir sig sjálft að þegar flutningskostnaðurinn hækkar á móti fastri tölu endurgreiðsluhlutfallsins verður minna til skiptanna,“ segir Gunnar Þorsteinsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, að lokum.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.