Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Magnús segir að ERL hvetji félagsmenn sína og aðra sem halda hænsni að vera sérstaklega meðvitaða um klæðnað sinn eftir utanlandsferðir. Þá sé handþvottur mikilvægur.
Magnús segir að ERL hvetji félagsmenn sína og aðra sem halda hænsni að vera sérstaklega meðvitaða um klæðnað sinn eftir utanlandsferðir. Þá sé handþvottur mikilvægur.
Mynd / Aðsend
Fréttir 20. janúar 2023

Smitvarnir áréttaðar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Í ljósi útbreiðslu bráðsmitandi afbrigðis af fuglaflensu H5N1 sá Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna (ERL) ástæðu til að senda á félagsmenn sína tilkynningu um að huga sérstaklega að smitvörnum.

Í henni kemur m.a. fram að hænsnaeigendur skuli varast að ganga um í kringum hænur sínar í sömu skóm og notast var við í nýlegri utanlandsferð. Einnig að gæta þess að villtir fuglar komist ekki í fóður eða vatn í hænsnahúsunum og ekki síst að taka ekki óþarfa áhættu með flutningi á eggjum eða öðrum búnaði milli landa.

Varúðarráðstafanir fyrst og fremst

„Undanfarin ár hafa reglulega komið upp varúðarráðstafanir vegna fuglaflensu, erlendis og hér heima. Því fylgja gjarnan ákveðnar takmarkanir eða varúðarráðstafanir, sem eru gefnar út af opinberum aðilum eins og Matvælastofnun. Við hjá ERL vitum mjög vel að eigendur hænsna í smáum hópum eiga oft erfitt með að framfylgja slíkum reglum í öllum smáatriðum, enda miðast slíkar reglur við aðbúnað og aðstæður í alifuglahúsum stórra alifuglabænda.

Það breytir því þó ekki að alltaf er gott að staldra við og horfa gagnrýnum augum á eigið verklag og aðstöðu. Það er akkúrat það sem við erum að hvetja eigendur landnámshænsna til að gera. Horfa til hvaða atriða þeir geti bætt sig varðandi smitvarnir og aðbúnað,“ segir Magnús Ingimarsson, ritari í stjórn ERL.

Sjúkdómastaðan er almennt mjög góð

Magnús segir að sjúkdómastaða í alifuglarækt sé almennt mjög góð á Íslandi. Hér séu fáir sjúkdómar í samanburði við það sem gerist í mörgum löndum í kringum okkur.

„Vegna þessarar góðu stöðu á Íslandi er því til mikils að vinna fyrir heilbrigði hænsnanna sem við eigum hér á landi að halda þessum sjúkdómum í lágmarki. Bæði fyrir heilbrigði hænsnanna og okkar sjálfra. Hvort sem um er að ræða landnámshænur eða stóru framleiðslustofnana hér á landi. Það er líka rétt að minnast á að fuglaflensan hefur lítil áhrif á fólk. Engin hætta er á neyslu afurða hænsna (egg/kjöt). Fyrst og fremst hefur hún áhrif á heilbrigði dýrsins,“ segir Magnús.

ERL var stofnað í nóvember 2003. Félagið er fyrir alla þá sem áhuga hafa á varðveislu íslensku landnámshænunnar og hænsnahaldi yfirleitt. Félagsskapurinn er góður vettvangur fyrir þá sem áhuga hafa á varðveislu íslensku búfjárkynjanna eða varðveislu gamalla norrænna búfjárstofna. Félagsmenn eru um 200 talsins.

Skylt efni: fuglaflensa

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...