Slysalegur toppur í sumarbridds
Stundum gera spilarar allt rétt við borðið en enda með blóðnasir er kemur að skori. Þannig var það hjá Magnúsi SverrissyniHalldóri Þorvaldssyni, goðsögnum í bronsstigaheiminum, í spili dagsins í sumarbridds á dögunum.
Vestur gefur – allir á hættu
Bölvun félaganna hófst þegar ónefndur og ekkert allt of einbeittur suður dró upp vitlausan sagnmiða í opnunarsögn. Taldi sig vera að melda 1 tígul með sterku spilin en sagði óvart lauf með þrjú lauf en fjóra tígla. Þetta leiddi til þess að Halldór stakk inn einum tígli (sem átti eftir að reynast örlagaríkt). Norður doblaði, Magnús í austur meldaði einn spaða en suður hoppaði í 3 grönd.
Út kom spaði sem sagnhafi dúkkaði einu sinni en stakk upp ás í öðrum slag þegar ljóst var hvernig spaðinn brotnaði. Næst var hjarta spilað á ás og tígli á níuna! Harla líklegt eftir sögn Halldórs að það bæri árangur, sem gekk eftir. Sagnhafi sá að vestur átti líklega öll þau mannspil sem enn voru óstaðsett þar sem austur átti spaðapunktana. Annars hefði Halldór varla átt fyrir tígulsögninni? Næst var því tíguldrottningu spilað, Halldór drap og gerði vel með því að spila áfram tígli sem gaf engan slag en sviðið var sett. Suður drap, tók hjartakóng og gat valið um hvaða rauðu spili skyldi spilað. Vestur drap, gat tekið einn tígulslag en var svo endaspilaður og þurfti í 10. slag að spila laufi frá drottningunni þriðju.
Fullkomin vörn en mínus 600 og nánast botn. Mest vegna þess að suður dró upp vitlausan sagnmiða í fyrsta hring!
Úrvalsdeildin áfram
Þau gleðitíðindi hafa borist frá Bridgesambandi Íslands að ákveðið hefur verið að halda áfram með Úrvalsdeildina í bridge. Spilað verður á sunnudagskvöldum í beinni útsendingu. Verður hægt að fylgjast með spennandi viðureignum milli bestu sveita landsins í gegnum Rafíþróttir á Símanum, Twitch eða Youtube. Mótaröðin sló í gegn í fyrravetur og hefst leikur á ný í september, að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Bridgesambands Íslands.

Umsjón: Björn Þorláksson,
bjornthorlaksson[hjá]gmail.com
