Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Skýrsluhald í sauðfjárrækt: Óvenju vænir dilkar og hæsta meðaleinkunn fyrir gerð
Fréttir 3. mars 2026

Skýrsluhald í sauðfjárrækt: Óvenju vænir dilkar og hæsta meðaleinkunn fyrir gerð

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Niðurstöður úr skýrsluhaldi sauðfjárræktarinnar liggja nú fyrir um síðasta ár og þar ber hvað hæst að vænleiki dilka var frábær síðasta haust, auk þess sem meðaleinkunn fyrir gerð var sú hæsta á landsvísu frá því að núverandi kjötmat var tekið í notkun.

Í yfirliti ráðunauta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Árna B. Bragasonar og Eyþórs Einarssonar, kemur fram að framleiðsluárið 2025 hafi verið ákaflega hagstætt að mörgu leyti. Meðalafurðir eftir hverja á voru 28,98 kíló sem er aðeins meira en árið á undan, en aðeins minna en árið 2021 þegar þær voru 29,46 kíló en það var metár.

Áhrif á afurðir frá 2024

Segja þeir einhverja bændur hafa búist við enn meiri afurðum í slíku árferði, en ástæðu þess að svo varð ekki megi líklega rekja til ótíðar ársins 2024 sem hafi haft áhrif á ástand ánna og fóðurforðann sem lagt var af stað með inn í framleiðslu ársins 2025.

Þróunin sé þó sú að afurðir hafa aukist á síðustu árum sem og holdfylling lambanna. Ekki séu áberandi merki þess að áhersla á innleiðingu verndandi arfgerða dragi þar úr framförum.

Áfram megi bæta árangur í flestum eiginleikum en sérstaklega þyrfti að ná árangri í því að fjölga lömbum til nytja.

Hæsta einkunnin á Syðri-Urriðaá

Samkvæmt niðurstöðum var búsmeðaltal fyrir fallþunga 17,7 kg, einkunn fyrir gerð 9,65 og einkunn fyrir fitu 6,79 og er byggt á upplýsingum um rúmlega 374 þúsund sláturlömb.  Meðaltal fyrir þunga hækkar um 300 grömm milli ára, gerðin um 0,16 og fitan um 0,24.

Hvað varðar gerðareinkunn er efsta bú landsins Syðri-Urriðaá í Miðfirði með einkunn upp á 12,89 við 23,5 kílóa fallþunga.  Segja þeir að um athyglisverðan árangur sé að ræða þar sem verið sé að byggja upp nýja hjörð eftir fjárskipti og lömbin því eingöngu undan ungum ám.  Greinilegt sé að vel hafi tekist til við val á gimbrum og meðferð lambanna framúrskarandi.

Í yfirliti þeirra Árna og Eyþórs segir að búum sem ná 40 kílóum eða meira eftir hverja fullorðna á fjölgi hægt en örugglega og eins. Líkt og árið 2024 eru það níu bú sem ná þessum árangri.  Kaldbakur á Rangárvöllum er afurðamesta búið með 45 kíló eftir ána.  Í öðru sæti eru Efri-Fitjar í Fitjárdal með 44,2 kíló , í þriðja sæti er Gýgjarhólskot í Biskupstungum  með 44,1 kíló og í fjórða sæti er Kiðafell í Kjós með 43,1 kíló.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.