Þóranna Dögg Björnsdóttir laðaði fram seiðandi tóna á menningarnótt.  Í bakgrunni má sjá skógarhöggsmenn að störfum.
Þóranna Dögg Björnsdóttir laðaði fram seiðandi tóna á menningarnótt. Í bakgrunni má sjá skógarhöggsmenn að störfum.
Mynd / eks
Fréttir 27. ágúst 2026

Skógræktarátak

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Við erum auðvitað svolítið stórhuga að ætla okkur að planta 50.000 trjám árlega,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, um skógræktarátak borgarinnar sem er nýhafið.

Tilhneiging hefur verið að ýta gróðri út í jaðrana við þéttingu byggðar og krónuþekjan á höfuð- borgarsvæðinu hefur minnkað á undanförnum árum. Breyting kann að verða þar á. Borgarstjóri segir þurfa að leita leiða til að undirstrika tengingu við náttúruna.

Jákvæð áhrif þess að vera innan um tré

Eitt af verkefnum nýrrar borgarstjórnar í Reykjavík er að hefja átak í skógrækt með leik- og grunnskólabörnum og tryggja sumarstörf fyrir ungmenni í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur. „Við erum auðvitað svolítið stórhuga að ætla okkur að planta 50.000 trjám árlega. En það eru auðvitað margar rannsóknir sem sýna fram á mikilvægi þess og jákvæð áhrif þess að vera innan um tré,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, í kynningarmyndbandi borgarinnar um skógræktarátakið.

„Ég held í öllum hverfum þurfum við að leita leiða til að undirstrika tenginguna við náttúruna og það er missnúið, sumir búa nálægt fjöru og aðrir ekki. Tré geta verið lykilþáttur í því,“ segir Hildur í myndbandinu. Á verkefnalista borgarstjórnar er talað um að planta 50.000 trjám á kjörtímabilinu og óvíst hvort markmiðið er 50.000 eða 200.000 tré.

Ísland er eftirbátur Norðurlandanna

Tilhneiging hefur verið að ýta gróðri út í jaðrana við þéttingu byggðar og krónuþekja Reykjavíkur hefur minnkað á undanförnum árum. Breyting kann að verða á þeirri þróun með átakinu.

Samnorræna verkefnið Yggdrasill – hin lifandi norræna borg miðar að því að efla náttúrumiðaðar lausnir í borgum og sveitarfélögum á Norðurlöndunum. Það byggir á meginreglunni um 3+30+300 um trjárækt og grænar lausnir, þar sem allir borgarar ættu að geta séð þrjú stór tré frá heimili sínu, skóla, vinnustað eða dvalarstað; með að minnsta kosti 30 prósent laufþekju í hverju hverfi og enginn ætti að búa í meira en 300 metra fjarlægð frá grænu (og vönduðu) almennu svæði. Í verkefninu var gerð úttekt á þessum þáttum í borgum og bæjum Norðurlandanna og að Grænlandi undanskildu er Ísland alger eftirbátur hinna Norðurlandanna. Í skýrslu Yggdrasils er fjallað um leiðir til að samþætta 3+30+300 við stefnumótun og áætlanagerð sveitarfélaga.

Aukið samstarf Skógræktarinnar og Reykjavíkurborgar

Borgarstjóri og forseti borgarstjórnar funduðu með framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Skógræktarfélags Reykjavíkur um aukið samstarf í lok júlí. Skógræktarfélag Reykjavíkur er 125 ára á árinu. Liður í samstarfinu er lifandi sýning sem sett var upp í Ráðhúsi Reykjavíkur á menningarnótt.

Angan af skógi fyllti Ráðhúsið og nóg var að sýsla fyrir gesti. Fjölþætt upplifun af því að vera í skógi var dregin fram með skógarbaði og seiðandi tónum, kennt var að tálga, krakkar gengu um á trjástultum og hægt var að gæða sér á ketilkaffi og ylja sér við varðeld úti fyrir þar sem skógarhöggsmenn voru að störfum. Ljósmyndasafn Skógræktarfélagsins var gefið Ljósmyndasafni Reykjavíkur og ljósmyndir og myndasýning á tjaldi prýddu Ráðhúsið. Myndirnar báru ríkulegu starfi Skógræktarfélags Reykjavíkur glöggt vitni.

Skylt efni: Reykjavík

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...