Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Dýraverndarsamband Íslands telur stöðu dýra veika í almannavarnaástandi og vill úrbætur í formi lagabreytinga. Myndir sýnir hesta og strók úr Eyjafjallajökli í baksýn
Dýraverndarsamband Íslands telur stöðu dýra veika í almannavarnaástandi og vill úrbætur í formi lagabreytinga. Myndir sýnir hesta og strók úr Eyjafjallajökli í baksýn
Mynd / David Karná-Wikimedia
Fréttir 1. apríl 2025

Skepnur út undan í almannavörnum

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Dýraverndarsamband Íslands telur brýnt að styrkja stöðu dýra í almannavarnaástandi.

Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) telur nauðsynlegt að staða dýra í almannavarnaástandi verði styrkt og hefur leitað til dómsmálaráðuneytis þeirra erinda.

„Dýraverndarsamband Íslands átti fund með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins í byrjun febrúar. Þar lýsti Dýraverndarsambandið því sem við teljum vera óviðunandi stöðu, þar sem dýr eiga það til að gleymast í viðbrögðum við náttúruvá. Ráðuneytinu var afhent greinargerð, þar sem helstu sjónarmið koma fram. Það sem snýr að ráðuneytinu er að skoða hvort ástæða sé til að skerpa á lögum um almannavarnir, þannig að þau taki betur mið af lögum um velferð dýra sem tóku gildi seinna,“ segir Andrés Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri DÍS.

Hvað varðar framkvæmd rýminga og áætlanir þeim tengd, segir hann þau mál á könnu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og almannavarnanefnda sveitarfélaga.

Gripahús á hættusvæðum

Samtökin telja stöðu dýra á hættutímum ekki nægjanlega góða. „Dæmin úr Grindavík veturinn 2023–24 og í Neskaupstað eru það sem setti yfirstandandi vinnu Dýraverndarsambandsins af stað, en mál af þessum toga koma reglulega upp. Til dæmis má nefna samtal sem fór af stað í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli árið 2010, þar sem bændur stóðu sumir ráðþrota gagnvart því hvernig væri hægt að koma dýrum í skjól,“ útskýrir Andrés.

Hann segir að þegar horft er til hættunnar af ofanflóðum sé ágætlega kortlagt hvaða sveitarfélög búi við mestu hættuna. Hins vegar sé bara nýbyrjað að horfa til atvinnuhúsnæðis þegar kemur að ofanflóðavörnum og gripahús oft skipulögð á svæðum þar sem hætta geti komið upp.

„Ef litið er á nýjustu dæmin sést að hvers konar dýr geta verið í hættu. Þegar Grindavík var upphaflega rýmd, þá urðu kindur og gæludýr eftir. Í seinni rýmingum Grindavíkur snéri vandinn mestmegnis að sauðfé. Við rýmingu í Neskaupstað var það hesthúsahverfi sem ekki var rýmt að fullu,“ segir Andrés.

Vilja sterkari ákvæði í lögum

DÍS hefur kallað eftir því að dýr séu skilgreind sérstaklega í lögum um almannavarnir og þeim bjargað strax og fólki hefur verið komið í öruggt skjól. „Þetta kallar sennilega á lagabreytingar, en við setningu dýraverndarlaga voru ekki gerðar breytingar á lögum um almannavarnir, sem mögulega þarf að gera til að þau endurspegli sterkari stöðu dýravelferðar í gildandi lögum. Dýraverndarsambandið leggur áherslu á að úr því sé bætt og hefur lagt til eftirfarandi breytingar sem mætti nota til að ná mun betur utan um vernd dýra í almannavarnarástandi:

Talað sé um dýr í markmiðsákvæði laganna í 1. gr., sem í dag fjallar aðeins um almenning, umhverfi og eignir. Lögreglustjóra sé veitt skýr heimild í 23. gr. til að fjarlægja dýr af ákveðnum svæðum á hættustundu. Bætt sé tilvísun til dýra í 24. gr. um flutning fólks af hættusvæðum, eða að ný grein bætist við lögin er fjalli sérstaklega um flutning dýra af hættusvæðum,“ segir Andrés.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.