Fuglainflúensa hefur greinst í sýnum úr villtum fuglum.
Fuglainflúensa hefur greinst í sýnum úr villtum fuglum.
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi. Veiran er af gerðinni H5N5. Síðast greindist fuglainflúensa í heiðagæs við Höfn í Hornafirði í apríl 2026.

Matvælastofnun biðlar til almennings að sýna árvekni og aðgát komi þeir að dauðum eða veikum fuglum. Tilkynna skuli fund til viðkomandi sveitarfélags sem beri skylda til að bregðast við. Starfsmenn Matvælastofnunnar fjarlægi fuglinn sé þörf á því. Í tilkynningu frá Matvælastofnun er einnig áréttað að veiðimenn sýni aðgát og fylgi sóttvarnarleiðbeiningum á yfirstandandi fuglaveiðitímabili. 

Veiran dreifist meðal villtra fugla

Í tilkynningunni segir jafnframt að borist hafi fjöldi ábendinga um veika og dauða villta fugla víðsvegar að. Fyrstu jákvæðu fuglainflúensusýnin í haust hafi verið úr fugli sem fannst á Blönduósi, Skagaströnd og við Sauðárkrók um miðjan september. Smituðu fuglarnir voru hettumáfur, skúmur, svartbakur og sílamáfur. Eftir að fleiri tilkynningar bárust hafi greining á þeim sýnum leitt í ljós að smit fannst einnig á Suðausturlandi, við Jökulsárlón, og í Sandgerði á Reykjanesi. 

Tilkynningum um veika og dauða villta fugla hefur fjölgað mjög á síðustu vikum og bendir það til þess að veiran sé farin að dreifast meðal villtra fugla á ný. 

Fuglaeigendur hvattir til árvekni

Matvælastofnun biðlar til alifuglabænda og annara fugleigenda að gæta vel að sóttvörnum til að draga úr hættu á að smit berist frá villtum fuglum í fugla í haldi. Tilkynna beri tafarlaust til Matvælastofnunar verði vart við sjúkdómseinkenni í fuglum eða óvenjulegum dauðsföllum. 

Mikilvægur þáttur í smitvörnum er að tilkynnt sé um dauða eða veika fugla. Matvælastofnun óskar því eftir að almenningur haldi áfram að tilkynna fundi á dauðum eða veikum fuglum, nema það sé augljóst að dýrið hafi drepist af slysförum. Mikilvægt sé að lýsa fundarstað vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með ef kostur er. Frekari leiðbeiningar um tilkynningar og upplýsingar um fuglainflúensu má nálgast á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um fuglainflúensu.

Að sama skapi er það áréttað að almenningur skuli ekki meðhöndla dauða eða veika fugla og gæta þurfi sérstaklega að smitvörnum. 

Skylt efni: alifuglar | fuglainflúensa

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...