Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Sjálfboðaliðar í þágu náttúru eru ekki ódýrt vinnuafl
Mynd / BBL
Fréttir 29. mars 2017

Sjálfboðaliðar í þágu náttúru eru ekki ódýrt vinnuafl

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Sjálfboðaliðar Umhverfis­stofnunar hafa unnið samtals 1.750 dagsverk síðastliðin ár, að 80 verkefnum á 29 mismunandi friðlýstum svæðum. Þar má nefna náttúrulega göngustíga, endurheimt landslags og verndun líffræðilegrar fjölbreytni.  
 
„Ég er mjög stoltur af því umfangsmikla sjálfboðaliðastarfi sem fram fer árlega,“ segir René Biasone, umsjónarmaður sjálfboðaliðastarfs hjá Umhverfisstofnun.
 
René segir í pistli á heimasíðu Umhverfisstofnunar mikilvægt að koma því á framfæri í hverju sjálfboðaliðastörf í þágu náttúruverndar felist. „Margar skilgreiningar eru til og ekkert alhliða samkomulag. En flestir eru sammála um að það að vera sjálfboðaliði þýði að sá hinn sami leggi sitt af mörkum til að mæta viðurkenndri þörf/nauðsyn, með samfélagsábyrgum viðhorfum, og án þess að vinna í hagnaðarskyni,“ segir René.
 
Vinna að ólíkum verkefnum
 
Hann bendir á að sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar, sem vinni t.d. að endurheimt landslags með því að afmá för vegna utanvegaaksturs, gegni mikilvægu hlutverki, sem vart væri hægt að inna af hendi með öðrum hætti. Margir sjálfboðaliðar séu nemendur í náttúrufræði, líffræði, landafræði eða jarðfræði. Sumir stefni að landvörslu í þjóðgörðum. Með því að þjóna náttúrunni sem er almenningi í hag öðlist þau þekkingu. Sem dæmi um ólík verkefni sjálfboðaliða nefnir René endurheimt landslags og víðernis, verndun fuglalífs og gróðurs með stýringu gesta í óbyggðum og verndun líffræðilegrar fjölbreytni.
Umhverfisstofnun rökstyðji starfsemina með 1. grein náttúruverndarlaga þar sem segir að auðvelda eigi umgengni og kynni almennings af náttúru landsins og menningarminjum sem henni tengjast og efla þekkingu og fræðslu um náttúruna. Þjóðgarðar hafi þessi hlutverk vel skilgreind í 47. grein.
 
Innlendir leggja líka lið
 
Víða í heiminum, sérstaklega í Evrópu, reka ýmsar opinberar stofnanir sjálfboðaliðastarfsemi líkt og hér á landi. „Sjálfboðaliðastarf í þágu náttúru er alls ekki „ódýrt vinnuafl“. Skipulagning verkefna, ráðningaferli sjálfboðaliða, búnaður s.s. fatnaður, tjaldgræjur, verkfæri og öryggisbúnaður kosti sitt sem og gisting, matur, þjálfun sjálfboðaliða og liðstjóra. Þá nefnir hann að sjálfboðaliðar séu líka innlendir. „Á árinu 2016 hafa 104 sjálfboðaliðar  frá 13 mismunandi löndum unnið á Íslandi, m.a. íslenskir nemendur við FÁ og MH, ásamt kennurum þeirra.“ 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.