Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Sinneps- og kryddjurtagljáð lamb, berjabaka og ís
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 10. mars 2017

Sinneps- og kryddjurtagljáð lamb, berjabaka og ís

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Hér eru þrír fljótlegir en afar gómsætir réttir; sinneps- og kryddjurtagljáð lamb, berjabaka og ís.
 
Sinneps- og kryddjurtagljáð lamb með beikoni
  • 4-6 bitar af góðu lambi, um 180-200 g á mann
  • Ein matskeið ólífuolía
  • Tvær matskeiðar Dijon-sinnep
  • 1/4 bolli fersk steinselja, fínt söxuð
  • 150 g beikon, sneiðar (stökkteiktar og þerraðar á pappír)
  • Tveir stórir skalotlaukar, eða litlir rauðlaukar skornir í tvennt
Hitið ofninn í 220 gráður. 
 
Kryddið kjötið með salti og pipar. Gott að brúna við háan hita á öllum hliðum.
 
Blandið jurtunum saman í skál með ólífuolíu og stökku beikoni. 
 
Nuddið allar hliðar lambsins með sinnepi og svo jurta- og beikonblöndunni. Setjið í ofnfast fat og bakið í 5-10 mínútur eftir stærð og gerð vöðvans. Lækkið ofnhitann í 120 gráður eða þar til þykkasti hluturinn nær að lágmarki 60 gráðum. 
 
Látið kjötið hvíla í 15 mínútur. Sneiðið og framreiðið með meðlæti að eigin vali og góðu grænmeti (eins og ristuðum lauk sem er gott að baka með kjötinu, krydda með ediki og smá olíu).
 
Maís passar einnig vel með þessum mat og sveppasósa.
 
Berjabaka sem ekki þarf að baka, með hindberjum og hvítu súkkulaði
  • 180 g Oreo- eða haustkex
  • 75 g ósaltað smjör, brætt
  • 180 g hvítt  súkkulaði
  • 90 ml rjómi
  • 300 g ferskt hindber
Fyrir þessa uppskrift þarft þú fjóra 6-10 sentimetra hringi. Gott ef þeir eru til úr stáli en það má jafnvel nota botn af skyrdós.
 
Bætið smákökum í matvinnsluvél og gerið kexmylsnu. Bætið smjörinu við og blandið saman þangað til komin er sandáferð á blönduna. 
 
Setjið um það bil tvær matskeiðar í hvern hring (eða skyrdós), dreifið jafnt yfir hliðarnar og ýtið þétt niður með fingrunum eða bakhlið. 
 
Kælið í 30 mín.
 
Til að gera súkkulaðikrem er hvítt súkkulaði einfaldlega brætt og hrært  saman við rjóma. 
 
Blandan er hituð í örbylgjuofni, en bara í 20 sekúndur í senn. 
 
Hrærið á milli þar til blandan er slétt og glansandi.
 
Fylltu hvert form eða hring  með hvítu súkkulaði. 
 
Setjið fersk hindber varlega ofan á og skreytið með hvítu súkkulaði.
 
Einfaldur jarðarberja- og bananaís – gerður á fimm mínútum
  • 4 stk. bananar, frosnir
  •  4 bollar jarðarber, frosin
  •  2 matskeiðar sykur (eða hunang)
Setjið jarðarber í skál, bætið sykri við og hristið saman. Setjið skálina í örbylgjuofn í 30 sekúndur í einu. Hrærið þar til jarðarberin mýkjast og sykurinn leysist upp í safanum af berjunum.
 
Setjið banana og jarðarberjablönduna í matvinnsluvél. Hrærið þessu vel saman þar til þetta er orðið að fullkominni blöndu.
 
Setjið í box eða skál og leyfið að stífna upp í frysti í tvær til þrjár klukkustundir.
Takið úr frysti 10 mínútum áður en ísinn er borðaður, til að leyfa blöndunni að mýkjast lítillega. 
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.