Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Mynd / Úr safni
Fréttir 12. mars 2026

Setja ætti niður samningsmarkmið

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Bændasamtök Íslands (BÍ) setja sig ekki upp á móti því að áframhald viðræðna við Evrópusambandið (ESB) sé borið undir þjóðina.

Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri BÍ, telur best að klára þetta mál sem hefur tekið drjúgan part samfélagsumræðunnar í tæpa tvo áratugi.

„Við vitum þó að landbúnaðurinn er sá málaflokkur sem yrði fyrir hvað umfangsmestu og varanlegustu breytingum við aðild Íslands að sambandinu og helstu áhyggjurnar snúa að því.“

Margrét segir líka vitað að við inngöngu þyrfti Ísland að taka upp landbúnaðarstefnu sambandsins. „Sú stefna er sniðin að fjölmennari ríkjum á meginlandi Evrópu með hagstæðara loftslag þar sem aðfangakeðjan er styttri. Sá markaður telur um 450 milljónir neytenda samanborið við tæplega 400 þúsund hér. Stefnan hefur, að minnsta kosti hingað til, tekið takmarkað tillit til harðbýlis, smæðar og sérstöðu á borð við íslenskan landbúnað.

Þá er sérstakt að sjá það að samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar verða ekki ákveðin fyrr en að loknum kosningum, eins og fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni, þar sem segir að ákveði þjóðin að halda áfram viðræðum um aðild að ESB myndu stjórnvöld vinna uppfærð samningsmarkmið í víðtæku innlendu samráði.

Þar sem því er haldið fram að um áframhaldandi viðræður sé að ræða, þá hefði maður haldið að um sömu samningsmarkmið væri að ræða. Miðað við greinargerð þingsályktunarinnar þá virðist svo ekki vera. Í síðustu atrennu voru samningsmarkmiðin nokkuð skýr varðandi landbúnaðinn. Almenningur mun því ganga til kosninga í ágústlok án þess að vita hverju stjórnvöld vilja ná fram í mikilvægum málaflokkum eins og landbúnaði og viðskiptum með landbúnaðarafurðir.“

Vernd gegn innflutningi

Margrét nefnir sérstaklega vernd Íslands gegn innfluttum dýrasjúkdómum og erfðablöndun erlendra búfjárkynja sem afar mikilvægt mál í þessu samhengi. „Ísland býr við einhverjar öflugustu reglur að þessu leyti, til varnar bæði dýraheilsu og einstökum búfjártegundum sem hafa verið hér óáreittar um aldir alda.

Samkvæmt reglum ESB væri þetta bann ósamrýmanlegt innri markaðnum og má gera ráð fyrir að gerðar verði kröfur til Íslands um að taka upp sameiginlegar reglur um innflutning, rekjanleika og heilbrigðiseftirlit.“

Margrét segir að aðild að ESB feli einnig í sér afnám tolla á landbúnaðarafurðum, að óbreyttu. „Tollvernd er ein af meginundirstöðum íslensks landbúnaðar og brottfall hennar myndi að öllum líkindum auka innflutning og veikja rekstrargrundvöll innlendrar framleiðslu, með afleiddum áhrifum á atvinnu og byggð, sem og fæðu- og þjóðaröryggi.“

Hún spyr því, hver samningsmarkmið stjórnvalda verði þegar kemur að óheftum innflutningi á lifandi dýrum og óheftum innflutningi á erlendum landbúnaðarvörum. Þetta séu einungis tvö atriði af mörgum sem mætti nefna, en stjórnvöld gætu gert ýmislegt til að minnka óvissuna með því einfaldlega að setja niður samningsmarkmið sín áður en þjóðin gengur að kjörborðinu.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.