Sebrafolaldið í góðu yfirlæti á hrossabúinu.
Sebrafolaldið í góðu yfirlæti á hrossabúinu.
Mynd / Dýragarðurinn í Álaborg
Utan úr heimi 29. október 2026

Sebrafolald í fóstur hjá hryssu

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Sebrahryssa kastaði nýlega folaldi í dýragarðinum í Álaborg. Upp kom óvenjulega staða þegar hryssan drapst daginn eftir og koma þurfti móðurlausu folaldinu í fóstur.

Starfsmenn dýragarðsins settu sig í samband við hestasamfélagið í nágrenninu og folaldið var flutt á hrossaræktarbú. Því heilsast vel.

Átti fyrsta daginn með móðurinni

Sunnudaginn 4. október kastaði sebrahryssa í dýragarðinum í Álaborg folaldi. Fæðingin tók 20 mínútur og folaldinu heilsast vel. Folaldið átti fyrstu klukkustundirnar með móðurinni, drakk og virtist hraust. Móðirin lést aftur á móti daginn eftir. Upp var komin óvenjuleg staða.

Starfsmönnum tókst að mjólka hryssuna og færa folaldinu þannig lífsnauðsynlega næringu úr fyrstu mjólkinni, sem inniheldur mikilvæg efni fyrir ónæmiskerfið.

Þeir brugðu svo á það ráð að leita á náðir hestasamfélagsins á svæðinu og freista þess að finna fóstru fyrir folaldið. Sú leit bar árangur og folaldið var flutt til hryssu sem nýlega hafði kastað á hrossaræktarbúi.

Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni dýragarðsins heilsast sebrafolaldinu vel. Staðan er metin dag frá degi af sérfræðingum dýragarðsins og hrossaræktendunum. Eins og sakir standa er framtíð folaldsins lofandi og starfsmenn krossa fingur. Enn hefur sú litla ekki fengið nafn.

Stærsta hrossategundin

Sebrafolaldið er af tegundinni Grévy (Equus grevyi), sem er stærsta núlifandi villta tegundin í hrossafjölskyldunni, sem einnig hefur að geyma hesta og asna. Tegundin lifir villt í Kenía og Eþíópíu. Af sebrategundum er Grévy sú hávaxnasta, með stór eyru sem minna á asnaeyru og fíngerðari rendur en aðrir sebrahestar, áberandi upprétt fax og grannleita snoppu. Grévy-sebrahestar borða gras, belgjurtir og kjamsa stundu á akasíutrjám.

Samfélög Grévy-sebrahesta byggja á feðraveldi og sterkum tengslum hryssa og afkvæma þeirra. Grévysebrahestar eru á lista yfir dýr í útrýmingarhættu í villtum heimkynnum sínum en ræktunarstarf í dýragörðum hefur gengið vel. Stofninn er talinn vera rúmlega 2.000 dýr.

Ekkert fer til spillis í dýragarðinum og ljónin í dýragarðinum fengu að gæða sér á hryssunni, hringrás lífsins heldur áfram.

Skylt efni: Danmörk

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...