Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Sátt í ullargreiðslumálinu
Fréttir 6. febrúar 2025

Sátt í ullargreiðslumálinu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Sátt var gerð í máli Bjarna Sigurjónssonar, sauðfjárbónda á Fornustekkum í Hornafirði, á hendur íslenska ríkinu þar sem krafist var bóta vegna vangreiddra ullargreiðslna.

Málflutningurinn átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 29. janúar en réttarsátt var gerð milli aðila þannig að munnlegur flutningur málsins féll niður. Helgi Jóhannesson hæstaréttarlögmaður fór með málið fyrir hönd Bjarna. Hann segir að íslenska ríkið hafi fallist á að greiða höfuðstól stefnukröfunnar að viðbættum dráttarvöxtum frá þingfestingardegi til greiðsludags. Þá greiðir íslenska ríkið allan málskostnað einnig. Hann segir að málið sé fordæmisgefandi fyrir rúmlega 1.600 aðra sauðfjárbændur sem einnig fengu of lítið greitt frá ríkinu fyrir ullarinnlegg sitt á árunum 2016-2017. Kröfuupphæðir eru mismunandi eðli málsins samkvæmt, allt frá nokkrum þúsundum króna upp í meira en eina milljón króna á bónda, auk vaxta. Samtals eru þetta yfir 200 milljónir sem um ræðir.

Fjárhagstjón fyrir bændur

Fjallað var um málið hér í blaðinu í júní á síðasta ári þegar það var þingfest. Þar kom fram að málið snérist um bráðabirgðaákvæði sem sett var í reglugerð 17. desember 2017, þar sem uppgjörstímabilinu vegna ullargreiðslna til bænda var breytt. Tímabilið sem áður var frá 1. nóvember til 31. október var þannig lengt til 31. desember 2017, úr 12 mánuðum í 14 mánuði, án þess að fjármunum væri bætt við málaflokkinn af hálfu ríkisins. Af þeim sökum dreifðust fjármunirnir, sem eyrnamerktir voru til málaflokksins á þessu eina tímabili, á meira magn ullar en ella með tilheyrandi fjárhagstjóni fyrir bændur.

Þá var haft eftir Helga að umboðsmaður Alþingis hefði komist að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar væri ólögmætt. Að breytingin hafi farið gegn réttmætum væntingum ullarframleiðenda um greiðslur, sem höfðu lagt inn ull á tímabilinu 1. nóvember til 31. desember 2017, auk þess sem í ákvæðinu hafi falist afturvirk reglusetning.

Dómsáttin og jafnræðisregla stjórnsýsluréttarins

Helgi segir að með dómsáttinni nú og eftirfarandi uppgjöri við ullarframleiðendur sé nú loks komin niðurstaða í þetta langvinna deilumál, en ríkið gerði dómsátt við sjö ullarframleiðendur á árinu 2022 á sama grundvelli.

Málalokin nú séu því í samræmi við þau málalok og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins.

Nýtt Bændablað kom út í dag

Skylt efni: ullargreiðslumálið

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.