Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Samkeppnishæf á alþjóðamarkaði
Lesendarýni 26. ágúst 2021

Samkeppnishæf á alþjóðamarkaði

Höfundur: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Nýsköpun stuðlar að framförum með nýjum hugmyndum, verklagi eða uppgötvunum. Nýsköpun er mikilvægur þáttur í allri framþróun, í samkeppni og að fyrirtæki hér á landi myndi sér sérstöðu gagnvart fyrirtækjum á alþjóðamörkuðum.

Stjórnvöld hafa gert ágæt­­lega hingað til og er nýsköpunarumhverfið á Íslandi nokkuð gott. Hægt er að sækja um í fjölmarga sjóði sem styðja við nýsköpun, bæði innlenda sem og evrópska sjóði. Til að mynda heldur Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) utan um marga af þessum sjóðum. Þar má meðal annars nefna að hægt er að leggja inn umsókn um skattafrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarverkefna en einnig heldur Rannís utan um tækniþróunarsjóðina sem margir þekkja.

Árið 2019 var mótuð nýsköp­unar­stefna sem er ætlað að gera Ísland betur í stakk búið til að mæta áskorunum framtíðarinnar og byggja upp traustan grundvöll fyrir hugvitsdrifna nýsköpun á öllum sviðum. Stefnunni er ætlað að marka sýn fyrir Ísland til ársins 2030 og í henni er sett fram það markmið að árið 2030 verði Ísland fjölbreytt samfélag velferðar, öryggis og jafnra tækifæra auk þess sem Ísland verði fremst meðal jafningja þegar borin eru saman lífsgæði og hamingja. Það er ávallt af hinu góða þegar slíkar stefnur eru settar og þeim þarf að framfylgja og það þarf að fjármagna þær. Því þegar litið er á starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja og það borið saman við starfsumhverfi fyrirtækja í öðrum löndum þá kemur í ljós að, framleiðsluþættir íslenskra fyrirtækja er almennt hærri en annars staðar. Til þess að innlend fyrirtæki geti verið samkeppnishæf á alþjóðamörkuðum þurfum við að tryggja þeim hlutfallslega yfirburði á einhverjum sviðum gagnvart öðrum mörkuðum.

Með öflugri nýsköpunarstefnu og stöðugri framfylgni hennar er hægt að tryggja markvissa og skilvirka framþróun í landinu. Þannig er hægt að hlúa að samkeppnishæfni fyrirtækja við önnur lönd. Sem dæmi þá getum við verið of íhaldssöm þegar kemur að breytingu á lögum og reglugerðum. Lög og reglugerðir sem voru settar og standast ekki þá framþróun sem á sér stað erlendis. Það er því mín skoðun, að við sem 375.000 manna þjóð eigum að geta haft hlutfallslega yfirburði gagnvart öðrum ríkjum þegar kemur að; a) lagasetningu og bættu regluverki, b) með því að gera skattkerfið skilvirkara og meira hvetjandi í þágu framþróunar og c) með skilvirkari stjórnsýslu sem stuðlar að og liðkar fyrir nýsköpun.
Klárum dæmið og blásum til sóknar!

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
lögfræðingur og frambjóðandi í 3. sæti á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.