Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Hulda Brynjólfsdóttir í Uppspuna í Ásahreppi.
Hulda Brynjólfsdóttir í Uppspuna í Ásahreppi.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 21. apríl 2026

Samkeppni um hönnun lopapeysu fyrir kvenbændur

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Árið 2026 er alþjóðlegt ár kvenbóndans en af því tilefni hefur Uppspuni í Ásahreppi efnt til samkeppni meðal áhugasamra prjónara og hönnuða. Markmiðið er að hanna íslenska lopapeysu til heiðurs konum í bændastétt landsins.

Hulda Brynjólfsdóttir í Uppspuna fer fyrir verkefninu. „Vegna ársins 2026, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað „KVENBÆNDUM“ heimsins fannst okkur tilvalið að láta bera meira á okkur kvenbændum með því að gera eitthvað af þessu tilefni. Það lá beinast við að láta hanna lopapeysu úr íslenskri ull, því hvað hafa ekki kvenbændur gert mest af í gegnum tíðina? Jú, fyrir utan að rækta og hirða skepnur til sveita, þá held ég að það sé að vinna ull og prjóna úr henni og þannig halda hita á íslensku þjóðinni. Þannig að þetta er bæði gert fyrir íslensku ullina og bændurna,“ segir Hulda.

Allir geta tekið þátt

Geta allir verið með eða er einhver sérstakur markhópur? „Já, já, allir geta verið með og við höfum einnig auglýst þetta á erlendum samfélagssíðum, þannig að það eru ekki bara Íslendingar sem mega taka þátt. En peysan á að vera fyrir kvenbændur, bæði á Íslandi og úti um allan heim. Svo að allir sem eru að prjóna eða hanna lopapeysur eru hvattir til að taka upp prjónana og skila inn í keppnina. Það er mikill áhugi og verðlaunin eiga eftir að verða vegleg,“ segir Hulda. 

Reglur keppninnar

Nokkrar reglur fylgja keppninni en peysan verður að vera íslensk lopapeysa, hún á að vera fyrir konur og hún skal unnin úr íslenskri ull. Garn frá Uppspuna er æskilegt en er ekki skylda en íslensk framleiðsla og íslensk ull er skilyrði.

Upplýsingum um prjónara skal skilað með peysunni og drögum að uppskriftinni í lokuðu umslagi, þar sem nafnleynd verður fyrir dómarana, til Huldu Brynjólfsdóttur í Uppspuna fyrir 1. júní 2026. Uppskriftin þarf ekki að vera fullunnin og það má sömuleiðis fá frekari upplýsingar hjá Huldu á netfanginu huldauppspuni[hjá]gmail.com.

Tvær peysur munu hljóta vegleg verðlaun; besta peysan og frumlegasta peysan. Farið verður yfir peysurnar og úrslit kynnt 20. júní næstkomandi. Hlutleysis verður gætt til hins ítrasta og dómarar eru ekki tengdir Uppspuna og fá þeir ekki að vita hver á hvaða peysu.

Mjög spennt Hulda segist eiga von á góðri þátttöku í keppninni enda sé hún orðin mjög spennt. „Ó, já, ég er mjög spennt en nú þegar hefur fólk sýnt þessu mikinn áhuga og nokkrir búnir að tilkynna að þeir ætli að taka þátt. Það verður hátíð 20. júní því við ætlum að hafa daginn skemmtilegan og bjóða t.d. styrktaraðilum og þátttakendum ásamt öðrum áhugasömum að koma og vera viðstödd verðlaunaafhendinguna og gera þessu svolítið hátt undir höfði,“ segir Hulda. 

Skylt efni: Keppni | Uppspuni | prjónaskapur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.