Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Matvælastofnun mun sameinast Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Matvælastofnun mun sameinast Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Fréttir 5. mars 2026

Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Frumvarpsdrög um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs hafa verið lögð í Samráðsgátt stjórnvalda.

Markmiðið er að einfalda þjónustu við atvinnulíf, fækka samskiptaleiðum og skýra ferla með öflugri og skilvirkari stofnun sem mun hafa starfsstöðvar víða um land. Gert er ráð fyrir að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2027.

Sömuleiðis stendur til að breyta lögum um Hafrannsóknarstofnun í þeim tilgangi að skýra og styrkja þann lagaramma sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og gera stofnuninni þar með betur kleift að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með lögum.

Matvælaeftirlit fer til nýrrar stofnunar

Með frumvarpinu um sameiningu stofnana er jafnframt lagt til að matvælaeftirlit sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga flytjist til nýrrar sameinaðrar stofnunar. Þá sé einnig brugðist við ábendingum Eftirlitsstofnunar EFTA um að efla skilvirkni opinbers eftirlits í samræmi við EES-reglur.

Í umfjöllun atvinnuvegaráðuneytisins um fyrirhugaða sameiningu segir, að hún sé í samræmi við niðurstöður fýsileikagreiningar sem sýndi fram á tækifæri til aukinnar samþættingar, samstarfs og styrkingar stjórnsýslu og faglegra stoða eftirlitsins. Þar kom fram að fyrrgreindar stofnanir sinna allar opinberu eftirliti á sviði matvæla sem megi samþætta enda mikil líkindi í viðfangsefnum og starfsstöðvar reknar á svipuðum stöðum á landinu. Að auki skapi sameining forsendur fyrir samræmda stefnumótun og framkvæmd í matvælaframleiðslu og fiskveiðum. Jafnframt skapist tækifæri til að bæta þjónustu, draga úr skrifræði og bæta þjónustu við atvinnulífið. Horft verði til þess að til verði öflug eftirlitsstofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða þar sem starfsstöðvar verði staðsettar um allt land

Fleiri breytingar fyrirhugaðar

Fleiri frumvörp eru fyrirhuguð í því skyni að einfalda eftirlitskerfið og gera það skilvirkara. Í boðuðum frumvörpum um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits á sviði matvæla, hollustuhátta og mengunarvarna verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga aflagðar og færist eftirlit heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna með hollustuháttum og mengunarvörnum til Umhverfis- og orkustofnunar og með matvælum til Matvælastofnunar.

Með þessum breytingum fækkar eftirlitsaðilum á sviðum matvæla, hollustuhátta og mengunarvörnum verulega, en starfandi heilbrigðiseftirlitsstöðvar eru alls níu í dag um allt land.

Í umfjöllun ráðuneytisins segir að tildrög frumvarpsins um breytingar á lögum um Hafrannsóknastofnun megi að hluta rekja til ábendinga og gagnrýni á rekstur og stjórnsýslu stofnunarinnar sem hafa komið fram í úttekt og greiningarvinnu ráðuneytisins á stofnuninni sem og skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.