Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 ára.
Oddur Einarsson framkvæmdastjóri Þórs hf.
Oddur Einarsson framkvæmdastjóri Þórs hf.
Fréttir 18. ágúst 2014

Sala á dráttarvélum að aukast

Höfundur: Vilmundur Hansen

Fyrstu sex mánuði þessa árs er búið að selja 72 nýjar dráttarvélar hér á landi miðað við 55 vélar á sama tíma á seinasta ári og er því um 31% aukning að ræða. Árið 2013 seldust alls 108 nýjar dráttavélar.

Endurnýjunarþörf fyrir dráttarvélar og önnur landbúnaðar­tæki er sambærileg því sem á við um bíla og vinnuvélar og þörfin orðin talsverð. Eðlileg endurnýjun er á bilinu 150 til 250 dráttarvélar á ári en salan heftur verið talsvert undir því frá hruni.

31% aukning fyrstu sex mánuði ársins

Oddur Einarsson, framkvæmda­stjóri hjá Þór hf., segir að árið 2009 hafi fjöldi seldra dráttarvéla farið niður í 20 og 26 árið 2010. Fjöldinn hefur smám saman verið að aukast og var 47 vélar 2011. „Miðað við að á síðasta ári hafi heildarsalan verð 108 vélar og aukningin 31% á fyrstu sex mánuðum þessa árs má búast við að heildarsalan fari í 140 til 150 og snerti þannig neðri mörk þess sem eðlilegt getur talist.“

Aflminni vélar en fyrir hrun

Að sögn Odds eru dráttarvélarnar sem keyptar hafa verið eftir hrun og til dagsins í dag mikið í kringum 100 til 150 hestöfl að afli sem er nokkru minna en vélarnar sem voru að seljast árin fyrir hrun. „Á þeim árum var algeng að bændur væru að kaupa mikið af stórum og dýrum vélum og uppundir 300 hestöfl að afli og mest fór salan í rúmlega 350 vélar árið 2007.“

Sala á stærri landbúnaðartækjum eykst

„Sala á landbúnaðartækjum hefur verið ágæt það sem af er árinu og þá sérstaklega þegar kemur að stærri tækjum eftir talsverða deyfð undanfarin ár, til dæmis rúllubindivélar og rúlluvélasamstæður. Ég held að á salan á þessum vélum í ár sé sú mesta eftir hrun og að nálgast eðlileg mörk. Í hruninu var aftur á móti talsvert af þeim selt úr landi.
Hvað sölu á minni vélum eins og snúnings- og rakstravélum varðar þá er hún dræm og eins og menn haldi enn að sér höndunum með endurnýjun á þeim.“

Gamlar vél notaðar sem varahlutir

Oddur segir að þrátt fyrir samdrátt í sölu á landbúnaðarvélum eftir hrun hafi sala á varahlutum verið minni en búast hefði mátt við. „Bændum hefur fækkað undanfarin ár og margir keypt notaðar vélar af þeim sem hafa hætt búskap eða öðrum og nýtt þær í varahluti. Við verðum líka varir við að þeir sem eru að kaupa varahluti á annað borð eru að kaupa hluti í mjög gamlar vélar.“

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...