Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Saga skógræktar á Íslandi
Á faglegum nótum 18. nóvember 2024

Saga skógræktar á Íslandi

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson, starfsmaður búgreinadeildar skógarbænda.

Fyrir langa löngu uxu alls konar plöntutegundir á Íslandi, sem nú þykja framandi, svo sem risavaxinn mammútviður, degli, beyki og eik. En svo kom ísöld.

Hlynur Gauti Sigurðsson.

Þegar Norðmenn gáfu Íslandi fyrst auga var landið þakið þokkafullum birki- og reynitrjám, alla leið frá fjöru til jökla. Landið var svo búsældarlegt að þeir hófu landnám.

Fyrir öld síðan hafði fólk áhyggjur af jarðvegi sem fyki á haf út. Það þótti augljóst að svörðurinn var að gefa eftir og yfirborðsgróðurinn var mjög viðkvæmur.

Skógrækt og landgræðsla á vegum ríkisins rekja upphaf sitt til laga um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands sem sett voru árið 1907. Samkvæmt þeim átti hvort tveggja að vera verkefni embættis skógræktarstjóra, og svo var til ársins 1914 þegar umsjón með landgræðslu var flutt til Búnaðarfélags Íslands. Eftir það þróuðust verkefni í skógrækt og landgræðslu í sitt hvoru lagi í 110 ár. Nú er nýtt upphaf og erfitt að segja til hvers það leiðir eða hversu lengi það stendur.

Þökk sé Dönum, snemma á tuttugustu öldinni, barst nægileg þekking til Íslendinga til að reyna notadrjúgar trjátegundir til ræktunar. Fjölmargar tegundir og ýmiss konar tilbrigði við ræktunina voru prófaðar. Árangurinn var upp og niður, en þó kom það oftar en ekki á óvart hvað hrjóstrugt landið okkar gat gert til að fóstra þessar litlu plöntur.

Skógrækt ríkisins, sem áður og eftir hét Skógræktin, hélt ræktuninni til streitu í öllum landsfjórðungum, á landi sem nú gegnir hlutverki þjóðskóga. Í þjóðskógunum eru nú okkar stærstu og tignarlegustu tré, þar sem mörg vaxa með sama þrótti og þau gera í Skandinavíu.

Áhugi meðal almennings óx og í ungmannafélagsanda voru gróðursettir enn fleiri skógar undir merkjum Skógræktarfélags Íslands. Skógarauðlind Íslendinga var að vaxa úr grasi. Seint á öldinni sem leið hófst skógrækt á bújörðum. Ríkið hvatti bændur til nytjaskógræktar og fjármagnaði að mestu nýskógrækt á þeirra landi. Bændur fengu fyrir vikið uppvaxandi skóg og allar þær nytjar sem af þeim hlutust, skuldlaust.

Nú hefur Landgræðslan, Skógræktin og skógrækt á bújörðum verið sameinuð undir einn hatt, sem heitir Land og skógur. Sú stofnun mun vera þekkingar og rannsóknarbrunnur inn í komandi framtíð. Skógarbændur, sem áður stóðu saman undir flaggi „Landssamtaka skógareigenda“, eru nú vaxandi búgrein innan Bændasamtaka Íslands.

Ávinningur skógræktar er ótvíræður. Hann er raunverulegur. Á Íslandi ræktum við margar álitlegar trjátegundir. Búpeningur nýtur skjóls í boði trjánna. Almenningur nýtur útivistar. Uppskera er tryggari og meiri með skjólbeltum. Og ótal margt fleira.

En tímarnir breytast á meðan skógurinn vex. Meginbyggingarefni trjánna, kolefnið sem fyrirfinnst í andrúmsloftinu, er nú einnig orðið meginfjármögnun nýskógræktar víða um veröld. Sjónarmið nytjanna, landbótanna, skjólsins, viðarins og útivistarinnar er nú komið í önnur sæti.

Er markaður kolefnisbindingar að taka yfir? Hvernig lítur framtíð skógræktar út fyrir næstu kynslóðir Íslands? Sagan segir okkur að þótt ný tegund skógarnytja líti dagsins ljós hverfa þær gömlu ekki þar með. Timburframleiðsla, útivist, jarðvegsvernd o.m.fl. hætta ekki að vera mikilvæg hlutverk skóga þó að kolefnisbinding bætist við.

Kúnstin mun felast í því að láta öll hlutverkin vinna saman á sem hagfelldastan hátt fyrir skógareigendur og samfélagið allt.

Skylt efni: Skógrækt Íslands

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...