Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Stjórnvöld á Möltu komu á fót bændamarkaði árið 2011 til þess að bændur gætu selt neytendum afurðirnar sínar milliliðalaust. Mikil ánægja er með fyrirkomulagið, en 40 aðilar eru með fasta viðveru á stærsta markaðnum og tíu aðilar á minni markaði
Stjórnvöld á Möltu komu á fót bændamarkaði árið 2011 til þess að bændur gætu selt neytendum afurðirnar sínar milliliðalaust. Mikil ánægja er með fyrirkomulagið, en 40 aðilar eru með fasta viðveru á stærsta markaðnum og tíu aðilar á minni markaði
Mynd / ál
Utan úr heimi 23. febrúar 2026

Ríkisrekinn bændamarkaður

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á eyjunni Möltu stendur hið opinbera fyrir rekstri bændamarkaða til þess að auðvelda milliliðalaus viðskipti milli bænda og neytenda.

Bændamarkaðurinn starfar samkvæmt lögum sem stjórnvöld settu árið 2011. Matvælastofnun Möltu sér um reksturinn og er stærsti markaðurinn með fjörutíu sölubásum haldinn tvisvar í viku á stað sem nefnist Ta‘ Qali. Þá hefur matvælastofnunin opnað minni markað á stað sem nefnist Kottonera sem er vikulega og þar eru tíu sölubásar að jafnaði.

Vettvangur fyrir innlenda framleiðslu

Josephine Schembri, framkvæmdastjóri á sviði markaðsregluverks hjá matvælastofnun Möltu, segir hugmyndina upphaflega frá bændunum sjálfum sem hafi þrýst á stjórnvöld að koma bændamarkaðnum í lög. Áður þurftu flestir bændur að koma sínum vörum sjálfir á markað beint til verslana og veitingastaða eða í gegnum milliliði.

Þar sem bændamarkaðurinn er ríkisrekinn voru upphaflega sett þau skilyrði að þátttakendur væru bændur sem seldu framleiðslu úr nærumhverfinu. Var það gert til þess að gefa þeim færi á að verða sér úti um auknar tekjur í gegnum beina sölu. Eins var mikið ákall meðal neytenda að gefa þeim betra tækifæri til að kaupa hágæða innlend matvæli á hagstæðu verði.

„Þetta eru ekki bara ávextir og grænmeti,“ segir Andre Vella, sem starfar á markaðssviði matvælastofnunarinnar. „Við reynum að vera með söluaðila sem framleiða matvæli á Möltu og helst úr innlendum hráefnum. Eins eru sjómenn og svínabændur með sölubása. Enn fremur eru framleiðendur að hefðbundnum sætindum og handverksbakkelsi með sölubása þó svo að hráefnið sé ekki endilega að öllu leyti maltneskt,“ segir hann.

Vilja reisa markaðnum hús

Mikil skuldbinding fylgir því fyrir bændur að taka þátt í markaðnum, en þeir þurfa að vera tilbúnir með sínar vörur fyrir dagrenningu og vera með viðveru fram yfir hádegi. Því eru oft lítil samvinnufélög bænda sem taka sig saman í kringum hvern sölubás. Ef tilteknir söluaðilar geta ekki útvegað uppskeru allan ársins hring þurfa þeir að tilkynna það til matvælastofnunarinnar til þess að hægt sé að gera ráðstafanir til að gefa öðrum plássið.

Bændamarkaðurinn í Ta‘ Qali er undir berum himni á stóru bílaplani, en stjórnvöld útvega söluaðilum aðgang að salernum og rafmagni, ásamt því að matvælastofnunin sinnir markaðsstarfi. Bændurnir koma sjálfir með sölubása og tjöld. Þar sem markaðurinn hefur fest sig í sessi hafa stjórnvöld ákveðið að reisa hús yfir markaðinn sem mun rísa á næstu árum á sama stað. Andre segir að með nýju byggingunni verði hægt að bjóða upp á veitingasölu á staðnum. Eins verði starfsumhverfið ekki fyrir eins miklum áhrifum af veðri og vindum, en það geti verið erfitt fyrir bændur að standa vaktina þegar úti er rok og rigning.

Árgjald afar hagstætt

Aðspurð segir Josephine bændurna mjög ánægða með markaðinn og þegar þeir þurftu að endurnýja leyfin sín fyrir skemmstu sóttu allir um áframhaldandi pláss, enda árgjaldið ekki nema 77 evrur á ári og þurfa bændurnir ekki að borga neina þóknun af sinni sölu. Hún bætir við að nú sé unnið að því að breyta lagasetningunni í kringum bændamarkaðinn til þess að gefa matvælastofnuninni aukið frelsi í útfærslu markaðarins.

Árgjaldið sé til að mynda fest í lög og ekki hægt að breyta því sem stendur.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.