Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Rifið svínakjöt á flatböku og bragðgóðar bollakökur
Líf&Starf 25. september 2015

Rifið svínakjöt á flatböku og bragðgóðar bollakökur

Að þessu sinni bökum við ljúffenga pizzu með rifnu svínakjöti. Svokallað „pulled pork“ nýtur vaxandi vinsælda en þá er kjötið látið malla í ofni þar til það er orðið nær moðsoðið. 
 
Kjötið er líka kjörið að nota í samlokur. Að lokum kynni ég ykkur fyrir bollakökum sem taka örfáar mínútur í undirbúningi. Hitta alltaf í mark. 
 
Rifið svínakjöt á flatböku
  • 50 ml eplaedik
  • 100 ml tómatsósa
  • 50 g púðursykur
  • 1 msk. gult sinnep
  • 2 tsk. Worcestershire-sósa
  • 2 rif hakkaður hvítlaukur
  • 1/2 tsk. salt
  • 1/4 tsk. cayenne pipar
  • 1/4 tsk. ferskur malaður svartur pipar
  • 300 g  „BBQ Pulled pork“  svínakjöt (sjá uppskrift á eftir)
  • 1/2 stk.  lítill laukur, lauslega sneiddur
  • 200 g nýjar kartöflur sneiddar 
  • Annað meðlæti að eigin vali ostur eða kryddjurtir
 
Í miðlungs pott, sameinið edik, tómatsósu, púðursykur, gult sinnep, Worcestershire, hvítlauk, salt, cayenne og svartan pipar. Látið suðuna koma upp, hrærið til að leysa upp sykurinn. Leyfið sósunni að krauma í 10 til 15 mínútur eða þar til hún hefur þykknað örlítið. Setjið til hliðar og leyfið að kólna.
 
Setjið pizzastein í ofninn (annars þykkan stálbakka ef steinn er ekki til) og forhitið í 250 °C.
Stráið um 2 til 3 matskeiðum af hveiti á borð og fletjið deigið út. Raðið þunnt skornum kartöflum á deigið (gott að velta þeim upp úr smjöri eða hvítlauksolíu).
 
Rennið  pizzunni inn á heitan pizzasteininn eða bakkann og bakið í 10 til 12 mínútur eða þar til skorpan er stökk og gyllt. Látið svínakjötið í  sósuna, setjið á pizzuna ásamt lauksneiðum og kryddjurtum úr garðinum. Dreifið osti jafnt yfir pizzuna.
 
Pizzadeig
  • 230 g (1 bolli) heitt vatn (50° C)
  • 20 g þurrger
  • 1 tsk. hunang
  • 2 matskeiðar extra Virgin ólífuolía
  • 400 g (3 bollar) hveiti
  • 1 tsk. salt
 
Í stóra skál, sameinið vatn, ger, hunang og 1 msk. af olíu. Hrærið í gott deig. Látið hvíla í um það bil 5 mínútur.
 
Bætið helmingnum af hveitinu og salti, blandið með handafli þar til blandan er slétt. Haldið áfram að bæta restinni af hveitinu út í. Vinnið þar til deigið er slétt en samt örlítið klístrað. Setjið í skál með restinni af  ólífuolíunni. Plastið með filmu og hvílið á  heitum stað þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð, um 1 1/2 klst.
 
Kýlið deigið niður og fletjið út í pizzu eftir þörfum.
 
„BBQ Pulled pork“ svínakjöt:
  • 1 biti svínakjöt, t.d. hnakki
  • 1 msk. salt
  • 1 tsk. cayenne pipar
  • Ferskur malaður pipar
 
Fjarlægið svínakjötið úr kæli og látið það ná stofuhita áður en lengra er haldið.
 
Hitið ofninn í 160° C. Setjið kjötið á pönnu, steikið vel á öllum hliðum. Kryddið með salti, pipar og cayenne pipar. Hyljið með álpappír og bakið í 4 klukkustundir.
 
Fjarlægið svínakjöt úr ofninum, setjið til hliðar og kælið örlítið. Fjarlægið alla umframfitu. Rífið niður með hjálp tveggja gaffla eða notið hreinar hendurnar. Tætið svínakjötð niður í litla bita, blandið í sósuna og framreiðið ofan á forbakaða pizzuna.
 
Rauð bollakaka með vanillusmjörkremi
  • 1 matskeið smjör, brætt
  • 1 stór egg
  • 1/2 tsk. vanilludropar
  • 3 matskeiðar sykur
  • 3 matskeiðar (1/4 bolli) hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • rauður matarlitur
 
Í skál eða bolla, sameinið öll innihaldsefni og hrærið þar til deigið er slétt (ekki þeyta um of). Setjið deigið í kaffibolla og bakið í örbylgjuofni á háum hita í 75 til 90 sekúndur, eða þar til kakan er bökuð. Látið kólna aðeins áður en kremið er sett á. Örbylgjukökur er best að borða nýbakaðar.
 
Vanillu-smjörkrem
  • 2 matskeið smjör, þeytt
  • 40 g 1/4 bolli flórsykur
  • 1/4 tsk. vanilludropar
 
Sameinið öll innihaldsefni í skál og þeytið saman. Bætið við bragðefni eða lit að eigin vali.
 
Súkkulaði- og hnetu­­smjörs­bollakaka 
  • 3 matskeiðar hveiti
  • 2 matskeiðar sykur
  • 1 1/2 msk. kakó duft
  • 1/4 tsk. lyftiduft
  • klípa af salti
  • 3 matskeiðar mjólk
  • 1 1/2 msk. jurtaolía
  • 1 msk. hnetusmjör eða Nutela hnetukrem
Í stóru kaffimáli eða skál, hrærið saman þurru hráefni (hveiti, sykur, kakó duft, lyftiduft og salt). Bætið í mjólk, olíu og hnetusmjöri (Nutela). Hrærið þar til  deigið er slétt.
 
Eldið í örbylgjuofni á háum hita í um 1 mínútu og 10 sekúndur. Berið fram strax! Þetta verður mjög ljúffengt!

3 myndir:

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.