Nýja húsnæðið sem verður byggt við núverandi húsnæði verður um fjögur þúsund fermetrar að stærð.
Nýja húsnæðið sem verður byggt við núverandi húsnæði verður um fjögur þúsund fermetrar að stærð.
Mynd / Aðsend
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögur þúsund fermetra húsnæði við núverandi húsnæði á staðnum.

Guðmundur Svavarsson. Mynd / mhh

Í nýja húsinu verður hlutun, úrbeining, fullvinnsla, eldun, frystar, kælar, afgreiðsla, úrgangs- og tæknirými. Heildarfjárfesting í nýja húsnæðinu og vélbúnaði er áætluð um 2,8 milljarðar króna. „Nú er unnið að uppsetningu sökkla, veggja og þaks á viðbyggingu við vinnslu okkar á Hellu. Sökklar og veggir eru úr forsteyptum einingum frá BM Vallá, sem jafnframt er aðalverktaki á byggingunni. Með þeim vinna svo Límtré-Vírnet sem leggur til burðarvirki og klæðningu á þak ásamt útihurðum. Uppsetningu hússins annast Kári Arnórsson ehf.

Jarðvinna er í höndum Þjótanda ehf. og heimamenn munu hafa yfirumsjón með raf- og pípulögnum,“ segir Guðmundur Svavarsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, og bætir við. „Þetta er alls um 4.000 fermetra stækkun en á móti verða seldir um 1.000 fermetrar í Garðabæ. Við teljum mikið hagræði af þessu. Starfsemi, sem í dag er rekin á tveimur hæðum við mikil þrengsli á Hellu og öll starfsemi í Garðabæ, færist nú á eitt gólf undir einu þaki. Samhliða verður mestur hluti vélbúnaðar endurnýjaður.“

Guðmundur segir að starfsemin á Hellu sé löngu sprungin. „Ég ímynda mér að þegar núverandi húsnæði var byggt hafi framleiðslan verið innan við tíundi hluti þess sem nú er framleitt. Megnið af okkar eldisbúskap er í Rangárvallasýslu og þar af leiðandi liggur vel við að hafa slátrun og úrvinnslu á Hellu. Auk þess eigum við í góðu samstarfi við sveitarfélagið varðandi lóða- og skipulagsmál, sem í raun var forsenda þess að hægt væri að ráðast í verkefnið. Hér er líka gott mannlíf og gott starfsfólk sem ílengst hefur í starfi,“ segir Guðmundur, alsæll með starfsemina á Hellu og nýju bygginguna sem er nú verið að byggja.

Skylt efni: Hella

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...