Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórsson.

„Ég var í um tuttugu ár formaður reiðvega- og samgöngunefndar Landssambands hestamanna og í gegnum tíðina hefur mikið efni safnast hjá mér,“ segir Halldór H. Halldórsson í samtali. „Þegar ég fór að velta fyrir mér hvað ég ætti að gera við allar þessar upplýsingar varð úr að ég tók þær saman og gerði rafræna bók sem er öllum aðgengileg á heimasíðu LH (Landssamband hesta- manna).

Í bókinni fjalla ég fyrst um þjóðleiðir og reiðvegi á öldum áður og hvernig þeir hafa þróast. Þó svo að margt hafi verið skrifað um forna tíð hef ég hvergi rekist á að sérstaklega hafi verið skrifað um reiðvegi, þó svo að nokkuð hafi verið fjallað um póstleiðir og kappana sem voru í þeirri baráttu. Ég er ekki að fjalla beint um einstaka reiðleiðir, fyrir utan þær helstu yfir hálendið og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í miðhluta bókarinnar fer ég yfir nútímasögu reiðvega og hvernig þeir hafa byggst upp. 

Það sem ég var að vonast til var að þessi bók yrði til þess að þeir sem á eftir mér koma hafi allar upplýsingar við höndina, að minnsta kosti frá þeim tíma sem ég var í reiðvega- og samgöngunefndinni. Þeir sem eru að vinna að málefnunum þurfa því ekki að vera stöðugt að finna upp hjólið. Eins vona ég að hestamenn grípi í bókina og hafi gaman af því að fletta í henni. Þar sem bókin er rafræn er hægt að hoppa á milli kafla með því að smella á þá í efnisyfirlitinu.

Reiðvegir og þjóðleiðir eru fyrstu samgönguinnviðir þjóðarinnar og hluti af menningararfi okkar. Eins og með marga innviði hefur verið skortur á viðhaldi og þeir drabbast niður. Fjármunirnir sem ríkið veitir í þennan málaflokk standa ekki undir viðhaldi á þeim reiðvegum sem fyrir eru, hvað þá að styrkja eða byggja kerfið upp. Um fjórtán þúsund manns eru skráðir í hestamannafélög víðs vegar um landið. Yfirleitt eru svo rúmlega tveir sem taka virkan þátt í hestamennskunni með hverjum félaga. Því má áætla að um þrjátíu þúsund manns stundi þessa útivist,“ segir Halldór. 

Skylt efni: Hestar | þjoðleiðir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...