Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Reglulegar kvikmyndasýningar
Mynd / Úr safni
Fréttir 17. apríl 2026

Reglulegar kvikmyndasýningar

Höfundur: Ástvaldur Lárusson
Duggholufólkið verður sýnt á Þingeyri.

Laugardaginn 18. apríl verður myndin Duggholufólkið sýnd á vegum Bíóteksins á Þingeyri.

Sýningin verður klukkan 16:00 í félagsheimili bæjarins. Ari Kristinsson leikstýrði og skrifaði handritið að Duggholufólkinu. Er þetta kvikmynd fyrir alla fjölskylduna sem kom út árið 2007 og er nútíma ævintýri byggt á samnefndri þjóðsögu sem gerðist á Vestfjörðum. Ari segir í samtali að þetta sé sennilega frumsýning myndarinnar í landshlutanum þar sem hún var ekki sýnd í Ísafjarðarbíói á sínum tíma.

Bíótekið á Þingeyri er rekið í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands og styrkt af Ísafjarðarbæ. Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Kvikmyndasafninu, segir í samtali að sýningar sem þessar séu einungis mögulegar ef framtakssamir einstaklingar eru til í að taka verkefnin að sér. Tinna Ottesen og Janus Bragi Jakobsson halda utan um kvikmyndasýningarnar á Þingeyri og er aðgangur ókeypis. Þau hafa hins vegar keypt poppvél og verður nammisala á staðnum.

Til stendur að vera með kvikmyndasýningar einu sinni í mánuði á Þingeyri, rétt eins og fyrirkomulag Bíóteksins er í Reykjavík. Frumraun Bíóteksins á Þingeyri var þann 15. mars síðastliðinn þegar The Kid eftir Chaplin var sýnd fyrir fullu húsi þrátt fyrir að allar leiðir til og frá Dýrafirði væru illfærar. Þann 9. maí næstkomandi verður kvikmyndin Foxtrott sýnd. 

Skylt efni: menning | þingeyri

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.