Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Rauðspretta í pönnu
Matarkrókurinn 12. október 2023

Rauðspretta í pönnu

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Rauðspretta er afar góður matfiskur og er í algjöru uppáhaldi á mínu heimili þegar á að pönnusteikja fisk og bera fram ásamt grænmeti í einni og sömu pönnunni.

Einfalt og fljótlegt þegar það á við og svo má líka breyta og bæta eftir smekk með því sem fellur til í ísskápnum hverju sinni. Rauðsprettan er líka þekkt undir heitinu skarkoli og er vinsæll fiskur, til dæmis mikið veidd í norðaustanverðu Atlantshafi, Norðursjó, Ermarsundi og víðar. Hjá frændum okkar Dönum er rauðsprettan í miklum metum, yfirleitt hjúpuð í brauðraspi, og djúpsteikt og flestir hafa smakkað hana í því formi á dönsku smurbrauði með remúlaði og sítrónu.

Við sleppum mælieiningum í þetta skiptið, flestir hafa jú ágæta tilfinningu fyrir því hvað þarf til að metta sína fjölskyldu og gesti.

Steiktur fiskur þarf alla jafna sýru í sósu og eða meðlæti til að ná fram góðu jafnvægi í bragði, algengast er auðvitað að nota sítrónu og skera í báta sem má svo kreista yfir fiskinn. Líka vinsælt að nota kapersber sem eru pikkluð og hafa þess vegna skarpt ediksbragð. Til dæmis í bræddu smjöri þar sem laukur og kapers koma saman. Hér prófum við að nota kornasinnep, sem inniheldur jú líka edik rétt eins og kapersberin og er mjög gott, í hæfilegu magni auðvitað, með rauðsprettunni.

Nú þegar uppskerutími íslensks útiræktaðs grænmetis okkar íslensku grænmetisbænda stendur yfir er ekki hægt að sleppa því að nýta það bragðgóða góðgæti, kartöflur og gulrætur þarf að vera búið að forsjóða áður en við skellum fiskinum, sem best er að ofelda ekki, á pönnuna. Spergilkálið sker ég niður í smærri hnappa og elda í ofni í 10 mínútur á 180 gráðum áður en ég hefst handa við steikja sjálfan fiskinn.

Salat er einfalt að gera, að því gefnu að hráefnið sé ferskt og gott, af íslensku gæðasalati er úrvalið nægt. Til að gera það örlítið áhugaverðara bæti ég hér við bökuðum smátómötum sem eru algjört sælgæti ásamt Feta osti. Svo má hafa í huga að salat þarf ögn af dressingu eða góðri olíu og skvettu af ediki til að bragðast sem best. Svo er ekki verra að setja ögn af sjávarsalti á það áður en það er borið fram.

Steikt rauðspretta, kartöflusmælki, gulrætur, spergilkál og sinnepssmjör
  • Rauðsprettuflök
  • Hveiti
  • Matarolía
  • Smjör
  • Kartöflusmælki
  • Gulrætur
  • Spergilkál
  • Kornasinnep

Skolið, þerrið flökin og fjarlægið beinagarðinn og athugið hvort önnur bein fylgi flakinu sem þarf að snyrta frá, skerið í hæfilega bita og endilega leyfið roðinu að vera á því það er bragðgott og eiginlega ómissandi að fá það með fiskinum.

Veltið upp úr hveiti, saltið og steikið á vel heitri pönnu með matarolíu, bætið veglegri klípu af smjöri saman við.

Veltið flökunum og bætið grænmetinu á pönnuna og steikið þar til fiskurinn er eldaður. Sem er yfirleitt mun fyrr en flestir halda! Í lokin er kornasinnepi hrært við smjörið eftir smekk og hér má líka setja ögn af hunangi. Smakkið til með salti og berið fram.

Ferskt salat með bökuðum smátómötum og Feta osti
  • Gott ferskt salat
  • Smátómatar
  • Flögusalt
  • Ögn af flórsykri
  • Feta ostur
  • Ólífuolía
  • Gott edik
  • Ristuð graskersfræ

Byrjum á að setja tómatana í eldfastan bakka sem hæfir magninu, má s.s. ekki vera of stór, stráið ögn af flórsykri yfir, saltið og setjið síðast skvettu af ólífuolíu. Bakið í ofni á 130 gráðum í 20 mínútur.

Skolið og þerrið salatið og rífið niður eftir smekk, dreifið á bakka, eða víða skál og rífið Feta ost yfir. Bætið tómötum, graskersfræjum, ólífuolíu og ögn af ediki við. Nú eða klassískri franskri salatdressingu sem tekur enga stund að laga.

Einföld frönsk salatdressing „vinaigrette“
  • 1 msk. Dijon sinnep
  • 3 msk. rauðvíns- eða hvítvínsedik
  • 1 dl góð kaldpressuð olía
  • Salt

Blandið í krukku með loki og hristið vandlega saman, smakkið til með salti. Geymist í kæli í a.m.k. viku. Það er líka tilvalið að hræra uppskriftina saman í öflugum blandara. Uppskriftina má svo nota sem grunn, bæta t.d. við ferskum jurtum, skarlottulauk eða eldpipar ef staður, stund og stemningin kallar á slíkar breytingar.

Skylt efni: rauðspretta

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.