Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Belarus 920, árgerð 2011, fyrsta rafknúna dráttarvélin sem framleidd er í Hvíta-Rússlandi. Hún er með 60 kílówatta og 300 volta mótor sem skilar 250 Newtonmetra togi. Orkan er geymd á lithium-rafhlöðum sem dugar í í notkun í 3–4 tíma.
Belarus 920, árgerð 2011, fyrsta rafknúna dráttarvélin sem framleidd er í Hvíta-Rússlandi. Hún er með 60 kílówatta og 300 volta mótor sem skilar 250 Newtonmetra togi. Orkan er geymd á lithium-rafhlöðum sem dugar í í notkun í 3–4 tíma.
Fréttir 10. nóvember 2015

Rafvæðing véla í landbúnaði myndi auka fæðuöryggi

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Ný skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri um markmið og forsendur sauðfjárræktarsamnings er mjög viðamikil. Hún  tekur á mörgum spurningum og varpar upp enn fleirum varðandi afskipti ríkisins af þessari atvinnugrein. 
 
Fram kemur í skýrslunni að á Íslandi hafi verið nokkuð breið sátt um að styrkja landbúnaðinn þrátt fyrir að deilt hafi verið um landbúnaðarkerfið linnulaust áratugum saman. Í skoðanakönnun 2007 sögðu 94% svarenda að frekar eða mjög miklu máli skipti að landbúnaður yrði stundaður á Íslandi til framtíðar (Capacent Gallup 2007). Árið 2010 var hlutfallið 96% (Capacent Gallup 2010).
 
Fæðuöryggi verði tryggt ef landið lokast
 
Fæðuöryggi er oft nefnt sem ástæða fyrir landbúnaðarstyrkjum á Íslandi. Fæðuöryggi snýst um aðgang að fæðu og að lágmarka hættu á fæðuskorti og hungri við ófyrirséðar aðstæður. Gera þurfi ráð fyrir þeim möguleika að landið lokaðist fyrir innflutningi og þá þyrftu landsmenn að lifa á þeim matvælum sem framleidd væru innanlands. Slíkt ástand gæti verið heimsófriður eða eitthvað sem ekki er fyrirsjáanlegt nú. Í hruninu 2008 munaði þannig ekki miklu að viðskipti við Ísland stöðvuðust og þar með innflutningur á öllum vörum. Fyrirfram datt fáum í hug að slíkar aðstæður gætu nokkurn tímann skapast.
 
Í skýrslunni er bent á þann annmarka að ef landið lokaðist þá væri t.d. heyöflun háð notkun á olíu. Hægt væri að fæða þjóðina til skamms tíma með því að drepa þá gripi sem til eru. Til lengri tíma litið yrði þó einungis hægt að treysta á handverkfæri þar sem vinnuvélar ganga fyrir olíu. Um þetta segja skýrsluhöfundar m.a.: 
 
Rafvæðing í landbúnaði myndi auka fæðuöryggi
 
„Ef stjórnvöld vilja auka fæðuöryggi ættu þau því að hvetja til notkunar innlendra orkugjafa í landbúnaði. Það mætti gera með því að veita styrki til kaupa á landbúnaðartækjum sem nýttu rafmagn eða metangas, stuðla að vinnslu metangass úr mykju og þess háttar. Um heiminn fer bylgja rafbíla. Enn virðist þó lítið vera að gerast í rafvæðingu vinnuvéla og dráttarvéla þótt vinnuvélar knúnar rafmagni þekkist, svo sem lyftarar. 
 
Rafdrifnar landbúnaðarvélar myndu auka fæðuöryggi á Íslandi mjög mikið og minnka losun gróðurhúsalofttegunda í leiðinni. Slíkt átak á Íslandi myndi vekja athygli. Ef það tækist að minnka brennslu jarðefnaolíu verulega í landbúnaði með því að nota rafdrifnar vinnuvélar og lífdísil í bland gæti það hjálpað til að gera vöruna sérstaka, svo ekki sé talað um ef tækist að hætta notkun jarðefnaolíu alfarið.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.