Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Ræktun er hafin á burnirót í Hnífsdal til framleiðslu á fæðubótarefnum.
Ræktun er hafin á burnirót í Hnífsdal til framleiðslu á fæðubótarefnum.
Mynd / Aðsendar
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni úr henni til markaðssetningar á Íslandi.

Verkefnið fékk nýlega styrk úr Sóknaráætlun Vestfjarða. Um fjölskyldufyrirtækið Hjartarót er að ræða sem stendur á bak við það, í eigu þeirra Hörpu Kristjánsdóttur, Kjartans Árnasonar og Ránar Kjartansdóttur. „Síðustu þrjú haust var fræjum safnað og sáð í hólfabakka. Síðasta sumar voru fyrstu plönturnar svo gróðursettar í beð. Þar sem burnirót er hægvaxta planta þarf hún að vaxa í 5–6 sumur áður en hún er uppskorin. Því er búist við fyrstu uppskeru sumarið 2028 eða 2029. Ræktunin er því aðeins á byrjunarstigi og búist við að næstu árin fari í að prófa sig áfram með mismunandi leiðir í ræktuninni,“ segir Harpa.

Ein verðmætasta lækningaplantan

Að sögn Hörpu er burnirót talin vera ein verðmætasta lækningaplantan í íslensku flórunni. „Hún er fjölær af helluhnoðraætt sem myndar þúfur og vex á norðurslóðum og til fjalla. „Burnirót vex á norðurhveli jarðar og á Íslandi finnst hún í öllum landshlutum, allt frá sjávarmáli og upp í þúsund metra hæð. Hún er þó ekki algeng, þar sem hún er bæði mjög eftirsótt beitarjurt sauðkindarinnar, auk þess sem undanfarin ár hefur færst í vöxt að henni sé safnað til nýtingar í fæðubótarefni, jurtalyf og snyrtivörur. Ofnýting hefur því leitt til hnignunar plöntunnar og er hún komin á válista í sumum löndum.

Þar sem ræktunin er enn á byrjunarstigum hefur ekki verið ákveðið nákvæmlega hvaða leið verður farin í markaðsmálum, en líklegt að einblínt verði á fullvinnslu afurða svo sem tinktúru á innlendan markað.“

Bætir einbeitingu og eykur orku

Á Íslandi er burnirót fáanleg sem fæðubótarefni og jurtalyf. Harpa segir að hún sé farin að sjást líka á orkudrykkjamarkaðnum og þar sé gert ráð fyrir mikilli aukningu.

Lífvirk efni í rótum og jarðstönglum burnirótar séu aðallega salidroside og rosavin. „Burnirót er talin hjálpa líkamanum að takast á við streitu, draga úr þreytu og bæta andlega og líkamlega afköst. Hún er almennt notuð til að bæta einbeitingu, minni og skap, en einnig til að auka orkustig og styðja við þrek og þol. Rannsóknir benda til þess að hún geti einnig dregið úr einkennum kvíða og vægs þunglyndis.“

Skylt efni: Burnirót

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.