Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Matvælaráðuneytið fór ekki í sjálfstæðar túlkanir á hinum nýja lagatexta í svari sínu um framleiðendafélögin
Matvælaráðuneytið fór ekki í sjálfstæðar túlkanir á hinum nýja lagatexta í svari sínu um framleiðendafélögin
Mynd / smh
Fréttir 15. júlí 2024

Ráðuneytið svarar ESA um óvissuatriði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Matvælaráðuneytið segir í svari við fyrirspurn ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, að samkvæmt 5. grein nýlegra breytinga á búvörulögum sé eingöngu fyrstu framleiðendum kjötafurða, sem annast slátrun eða vinnslu þeirra, heimilt að nýta sér nýtt undanþáguákvæði frá samkeppnislögum til samvinnu.

Voru þetta viðbrögð ráðuneytisins við spurningum ESA um tiltekin óvissuatriði breytinganna. Spurt var meðal annars um hversu víðtækar breytingarnar væru og um möguleg áhrif þeirra á félög sem nytu góðs af undanþágunni en væru með aðra starfsemi á sínum vegum sem gæti eftir sem áður fallið undir samkeppnisákvæði EES- samningsins.

Félög sem sinna einnig annarri starfsemi

Sérstaklega óskaði ESA eftir svörum um stöðu þeirra félaga sem undanþágan næði til, en störfuðu einnig í aðfangakeðjunni og við ýmsa aðra þjónustu við bændur.

Matvælaráðuneytið fór ekki út í sjálfstæðar túlkanir á hinum nýja lagatexta í sínu svari, heldur vísaði beint í 5. grein laganna um framleiðendafélög, eins og áður segir. Að í henni komi einnig fram að skýrt skuli tekið fram í samþykktum félags sem starfi sem framleiðendafélag að tilgangur þess sé að starfa sem framleiðendafélag til samræmis við undanþáguákvæðið (71. gr. A).

Ísland hafði heimild

Erindi ESA var sent í byrjun maí, þar sem fram kemur að ESA hafi verið gert viðvart um breytingarnar sem urðu á búvörulögunum og um að matvælaráðuneytið hafi í kjölfarið sent bréf til atvinnuveganefndar, þar sem lýst var áhyggjum af því hvort breytingarnar samræmdust skuldbindingum Íslands gagnvart EES-samningnum.

Í byrjun júní var svo birt álit Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, sem Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) báðu um til að skera úr um hvort undanþágan um kjötafurðirnar frá samkeppnislögum gengi gegn EES- samningnum.

Niðurstaða Baudenbacher var sú að Ísland hafði heimild til að setja undanþáguheimild frá samkeppnislögum, um kjötafurðir, geymslu og flutning þeirra, í sína löggjöf.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.