Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Pitsan hans pabba
Fólkið sem erfir landið 20. nóvember 2019

Pitsan hans pabba

Rakel Anna er 6 ára Siglfirðingur sem býr í Kópavogi með mömmu sinni, pabba og Axel Inga, litla bróður. 
 
Rakel Önnu finnst gaman í skólanum og að leika með vinum sínum. 
 
Nafn: Rakel Anna Salmannsdóttir.
 
Aldur: 6 ára.
 
Stjörnumerki: Vog.
 
Búseta: Kópavogur.
 
Skóli: Salaskóli.
 
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Skrifa stafina svo ég viti hvað allir stafirnir eru.
 
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
 
Uppáhaldsmatur: Pitsan hans pabba.
 
Uppáhaldshljómsveit: Ég veit það ekki en uppáhaldslagið mitt er Ljónalagið.
 
Uppáhaldskvikmynd: Matthildur.
 
Fyrsta minning þín? Þegar ég var lítil í leikskólanum og var að róla.
 
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, fimleika hjá Gerplu og æfi fótbolta með HK.
 
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Snyrtikona ... að snyrta á einhverjum hárið.
 
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að fara í kollhnís og hoppa upp með báða fætur og út með lappirnar í fimleikum.
 
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í vetur?  Uuu ... að opna jólagjafir. Fara á skíði með mömmu og pabba og ömmu og afa. Leika úti með vinum mínum í snjónum og búa til snjókarl.
 
Næst » Rakel Anna skorar á Brynjar Snæ, frænda sinn á Grenivík, að svara næst.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.