Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Páskasúkkulaðibollinn
Mynd / Úr safni
Fréttir 15. apríl 2026

Páskasúkkulaðibollinn

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Mikið úrval er af súkkulaði í búðum og vefverslunum.

Á páskum er hefð fyrir miklu súkkulaðiáti víða um veröld. 100 % súkkulaði er næringarríkt og eykur einbeitingu.

Hreint súkkulaði er næringarríkt

Það er fádæma lúxus að útbúa sér góðan súkkulaðibolla og njóta hans í rólegheitunum, jafnvel uppi í rúmi. Fram undan er tíð súkkulaðiáts yfir páska og vert að huga að því súkkulaði sem er valið. Súkkulaði með mjög háu kakóinnihaldi, 85-100% fæst víða. Best er ef það er lífrænt ræktað, með því að velja lífrænt tryggir neytandinn sig fyrir notkun hvers kyns plöntuvarnarefnum í ræktuninni. Lífrænt ræktaðar vörur eru merktar með græna Evrópulaufinu. 100 % súkkulaði er alveg ósætt, inniheldur engin aukaefni en öllu jafna enn kakósmjörið.

Hreint súkkulaði er bæði næringarríkt, fullt af andoxunarefnum og veitir ómælda ánægju. Vinsælt er að laga heitt súkkulaði og drekka þegar einbeitingar er þörf, til dæmis fyrir hugleiðslu, skrif eða annað sem krefst góðrar athygli.

Hægt er að útbúa heitan súkkulaðibolla hvort heldur er með kúamjólk eða jurtamjólk, svo sem haframjólk eða möndlumjólk ef vilji er fyrir því að gera súkkulaðið eilítið léttara. Til að laga súkkulaðibolla eru um 20 g af því besta og hreinasta súkkulaði sem finnst sett út í góðan bolla af mjólk og hitað við vægan hita. Gæta þarf þess að ekki sjóði því þá byrja næringarefni að tapast úr súkkulaðinu. Hægt er að krydda með salti á hnífsoddi, eldpipar, kardimommum eða stjörnuanís og bæta við sætu ef vill, svo sem hunangi, hrásykri eða rapadura sykri sem hefur minni áhrif á blóðsykurinn.

Skylt efni: Páskar | Matvara

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.