Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Frestur til að skila inn tillögum er til 11. september 2026. Fyrirhugað er að veita viðurkenninguna á lífræna deginum sem haldinn verður í fjórða sinn þann 19. september næstkomandi.

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar um aðila í lífrænni framleiðslu sem talin eru hafa verið til fyrirmyndar að einhverju leyti í lífrænni framleiðslu á síðasta ári. Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningu þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni.

Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs.

Aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu

Í aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu, sem kom út í ágúst 2024, eru settar fram 14 aðgerðir sem skipt er í nokkra málaflokka. Hver um sig snýr að tilteknum hluta af virðiskeðju lífrænna matvæla eða að tilteknum innviðum sem þurfa að vera til staðar til að keðjan í heild verði sem sterkust.  

Hluti af aðgerðaáætluninni er að veita viðurkenningu til aðila sem þykja hafa skarað fram úr í framleiðslu, nýsköpun, vöruþróun, markaðssetningu, sölu eða kynningu á lífrænum vörum. Tilnefna má einstaklinga, fyrirtæki eða félög sem falla undir ofangreint.

Nánari upplýsingar má finna hér. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...